143. löggjafarþing — 41. fundur,  18. des. 2013.

fjáraukalög 2013.

199. mál
[21:23]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þetta. Ég er ekki inni í smáatriðunum í aðdraganda þessa máls eða þessum samningum þannig að ég fullyrti ekki að í nefndaráliti kæmu fram einhverjar rangfærslur. Ég sagði ekkert um það, ég tek bara eftir því sem er sagt þarna og vildi gjarnan skoða það. Eftir sem áður hef ég áhyggjur af málefnum Náttúruminjasafnsins. Þegar þingmaðurinn segir að það sé ekki verkefni fjárlaganefndar í raun heldur ætti frumkvæðið að koma frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu er ég sammála því en velti fyrir mér hvort þá sé ekki óráðlegt af fjárlaganefnd að leggja til að heimildin sé tekin út. Heimildin er bara heimild, hana þarf ekki að nýta. Ef menntamálaráðuneytið kemst að þeirri niðurstöðu að þessi mál sé hægt að leysa með öðrum og hagkvæmari hætti væri væntanlega hægt að koma fram með slíka lausn og hugsanlega ekki nýta þá heimild sem þarna stæði.

Ég velti fyrir mér hvort ekki sé óþarfi að fella niður heimildina með tillögu fjárlaganefndar. Væri ekki nær að leyfa henni að standa og sjá til hvort einhver önnur lausn væri í boði sem menntamálaráðuneytið gæti þá beitt sér fyrir? Þá kæmi hugsanlega ekki til þess að þessi heimild yrði nýtt.

Þetta eru vangaveltur af minni hálfu á þessu stigi og ég vildi gjarnan heyra hvort þingmaðurinn hefði heyrt einhvern ávæning af því frá menntamálaráðherra hvort einhverjar aðrar hugmyndir kynnu að vera í sjónmáli.