143. löggjafarþing — 41. fundur,  18. des. 2013.

Orkuveita Reykjavíkur.

178. mál
[22:25]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Frú forseti. Við ræðum frumvarp til laga um Orkuveitu Reykjavíkur. Sem nefndarmaður í atvinnuveganefnd skrifa ég ekki upp á nefndarálit meiri hlutans og ætla að fara aðeins yfir málið og gera grein fyrir breytingartillögu við þetta frumvarp sem ég legg fram.

Það er gert ráð fyrir því að þann 1. janúar 2014 muni raforkulög taka gildi en framkvæmdin snýr að aðgreiningu samkeppnis- og sérleyfisþátta í rekstri orkufyrirtækja. Ákvæði þetta var samþykkt á Alþingi árið 2008 þegar breytt var nokkrum lögum á auðlinda- og orkusviði. Þau lög fólu meðal annars í sér breytingu á raforkulögum. Eins og komið hefur fram hefur gildistöku þess í fjórgang verið frestað á síðustu árum en upphaflega átti það að koma til framkvæmda 1. júlí 2009. Samkvæmt ákvæðinu er gerð krafa um sjálfstæði dreifiveitna, þ.e. sérleyfisstarfsemi gagnvart samkeppnisstarfsemi, fyrirtækjaaðskilnaði og sjálfstæði stjórnar dreifiveitu. Orkuveita Reykjavíkur rekur sem sérleyfisstarfsemi raforkudreifingu, hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu en sem samkeppnisstarfsemi framleiðslu og sölu á raforku.

Frumvarp þetta er lagt fram til að gera mönnum kleift að framkvæma fyrrgreinda uppskiptingu fyrirtækisins um næstu áramót í samræmi við 14. gr. raforkulaganna. Einnig er lögð til sú breyting að skýrar sé kveðið á um heimild Orkuveitu Reykjavíkur til að eiga dótturfélög, gert ráð fyrir að samkeppnisrekstur fyrirtækisins verði rekinn í dótturfélagi og að sérleyfisrekstur verði í einu eða fleiri dótturfélögum. Við í þingflokki Vinstri grænna höfum miklar efasemdir og áhyggjur af þessu. Hér hefur komið fram að eigendanefnd Orkuveitu Reykjavíkur hefur áhyggjur af því að fyrirtækinu sé skipt upp en nú er hins vegar látið til skarar skríða og gengið enn lengra. Það er verið að kljúfa stofnunina í sjálfstæð dótturfélög og við höfum áhyggjur af því hjá þingflokki Vinstri grænna að það gæti hugsanlega auðveldað undirbúning að markaðs- og einkavæðingu þess hluta.

Þess vegna teljum við mikilvægt að fresta enn um sinn þessum breytingum og uppskiptingu Orkuveitu Reykjavíkur og nota tímann til að taka allt regluverkið upp gagnvart orkugeiranum í heild sinni. Við teljum líka að hvorki raforkulögin né Evróputilskipunin sem þau byggja á taki mið af íslenskum veruleika þar sem í raun er ekki virkur samkeppnismarkaður hér á landi. Við hefðum auðvitað átt að sækja um undanþágur á sínum tíma miðað við íslenskar aðstæður en þar sem önnur orkufyrirtæki í landinu hafa nú þegar uppfyllt viðkomandi Evróputilskipun um aðskilnað á framleiðslu og dreifingu á orku hefur verið mikil krafa á uppskiptingu Orkuveitu Reykjavíkur. Eins og ég nefndi áðan er mikil andstaða hjá eigendanefnd Orkuveitunnar við þessa uppskiptingu. Við teljum að innleiðingin hafi verið óheillaspor og óskum með þeirri breytingartillögu sem hér er lögð fram eftir því að við frestum þessari gildistöku til að endurskoða og kanna möguleika á því hvort hægt sé að breyta henni með einhverjum hætti.

Það er vissulega rétt sem kom fram hjá hv. formanni nefndarinnar, Jóni Gunnarssyni, við fengum á fund nefndarinnar lögfræðing Orkuveitunnar sem hafði hitt lánardrottna erlendis. Hið erfiða rekstrarumhverfi Orkuveitunnar eftir hrun hefur auðvitað verið áhyggjuefni og þess vegna hefur Orkuveita Reykjavíkur fengið þessa frestun. Menn hafa áhyggjur af því að lánskjör Orkuveitunnar og lánshæfi breytist við þessa uppskiptingu. Lögfræðingur Orkuveitunnar taldi að miðað við fyrstu sýn yfir þessar aðgerðir væri ekki hætta á því að lánskjör versnuðu en gat auðvitað ekki fullyrt það þegar ekki er hægt að tryggja það til lengri tíma. Eðlilega þótti mönnum þá gott að heyra þessi viðbrögð en samt sem áður teljum við að við eigum ekki að stofna rekstri þessa stóra og öfluga fyrirtækis í hættu þegar það er í uppbyggingarferli. Minni hluta atvinnuveganefndar, sú sem hér stendur, Lilja Rafney Magnúsdóttir, hefur því lagt fram breytingartillögu við frumvarp til laga um Orkuveitu Reykjavíkur, svohljóðandi:

„1. 7. gr. orðist svo:

Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2016. Þó öðlast 8. gr. þegar gildi.

Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög nr. 139/2001, um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur, með síðari breytingum.

2. Við bætist ný grein, svohljóðandi:

Eftirfarandi breyting verður á raforkulögum, nr. 65/2003: Í stað dagsetningarinnar „1. janúar 2014“ í ákvæði til bráðabirgða XVI í lögunum kemur: 1. janúar 2016.“

Við erum sem sagt að tala um frestun til tveggja ára til að fá þetta svigrúm til að skoða möguleika á upptöku á þeirri raforkutilskipun sem við gengumst inn á árið 2003.

Greinargerðin er stutt:

Lagt er til að því verði frestað til 1. janúar 2016 að 2.–4. málsliður 1. mgr. 14. gr. raforkulaga komi til framkvæmda. Jafnframt er lagt til að frumvarpið öðlist gildi á sama tíma.

Ég tel að sjónarmið okkar séu mjög gild í þessari umræðu. Áhyggjur eigendanefndarinnar hafa verið vel rökstuddar þó að borgarstjórn Reykjavíkur telji málið komið of langt. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir eigendanefndarinnar virðist löggjafinn ætla að halda þessum áformum til streitu og borgarstjórn virðist lítið geta gert í þeim efnum. Við leggjum fram þessa breytingartillögu til að gefa Orkuveitunni frest til að skoða þetta mál gaumgæfilega.