tekjuaðgerðir fjárlagafrumvarps 2014.
Herra forseti. Almennt eru þær breytingar sem meiri hlutinn flytur fyrir hönd sameiginlegrar vinnu nefndarinnar, og lúta að lagatæknilegum atriðum og rökstuðningi varðandi bankaskattinn, til bóta og við styðjum þær. Hér er hins vegar komið að álagningarhlutfallinu sjálfu. Það er kúnstugt að hér er verið að færa til prósentur, vegna þess að tekið hefur verið upp frítekjumark á skuldahlið skattandlagsins, þó að allir viti að í vændum sé enn frekari hækkun þessarar tölu, væntanlega við 3. umr. þegar til stendur að taka inn yfir 20 milljarða viðbótartekjur á þennan skatt. Það er auðvitað ákaflega ónotaleg staða að fá ekki nema nokkra klukkutíma til að skoða málið eins og það á að líta út í endanlegri mynd sinni þegar það verður að lögum hér og hefur nú einhvern tímann verið tekið korter í minna en að skutla inn 22 milljarða hækkun á skattstofni sisona sem er nýr að hluta til og um hvers lögmæti hefur ríkt veruleg óvissa.
Þetta eru því ekki þægilegar aðstæður. Við kjósum að sitja hjá við álagningartöluna sjálfa þangað til við fáum endanlega tillögu og getum tekið afstöðu til hennar.