143. löggjafarþing — 42. fundur, 19. des. 2013.
fjáraukalög 2013.
199. mál
Virðulegi forseti. Ég segi já við þessu en ég held að skipti máli að við séum sjálfum okkur samkvæm og bendum á hluti varðandi verklagið. Ég hef nú gert það samviskusamlega, bæði í nefndaráliti og í umræðu í þinginu og bent á að við erum svolítið á hæpnum forsendum þegar við skilgreinum þetta sem ófyrirséð útgjöld því að þau voru auðvitað mjög fyrirséð og fjármunirnir sem voru í þessum sjóði voru nýttir í annað. Öll vissum við, virðulegi forseti, að í ár mundu koma jól.