143. löggjafarþing — 42. fundur,  19. des. 2013.

svæðisbundin flutningsjöfnun.

164. mál
[12:30]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Ég fagna því sérstaklega að búið sé að setja þetta fyrirkomulag í varanlegt horf. Það var mjög ánægjulegt þegar ég lagði fram frumvarp um það undir árslok 2011, en þá voru menn að feta fyrstu skrefin í þessum efnum og var ákveðið að gera þetta til árs í senn. Það er mjög mikilvægt að fyrirkomulagið sé nú orðið að veruleika og hafi verið fest í sessi. Ég þakka samstarfið við hæstv. ríkisstjórn um þetta þjóðþrifamál.