143. löggjafarþing — 42. fundur,  19. des. 2013.

stimpilgjald.

4. mál
[13:23]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Frosti Sigurjónsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu um frumvarp til laga um stimpilgjald. Eftir að hv. efnahags- og viðskiptanefnd afgreiddi frumvarp til laga um stimpilgjald til 2. umr. barst henni erindi þess efnis að óljóst væri hvernig fara skyldi með skjöl sem verða undirrituð fyrir næstu áramót ef stimpilgjald af þeim er enn ógreitt 1. janúar næstkomandi þegar frumvarpið tekur gildi. Gert er ráð fyrir því að gildandi lög um stimpilgjald falli úr gildi á sama tíma og frumvarpið tekur gildi, þ.e. 1. janúar 2014.

Að mati nefndarinnar er rétt að bregðast við framkominni ábendingu og leggur nefndin því til að 15. gr. frumvarpsins verði breytt á þann veg að í henni verði skýrt kveðið á um að skjöl sem hafa verið gefin út og/eða undirrituð fyrir gildistöku frumvarpsins, þ.e. í gildistíð laga nr. 36/1978, um stimpilgjald, en hafa ekki verið stimpluð fyrir gildistökuna 1. janúar 2014 verði gjaldskyld samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Við 15. mgr. bætist því nýr málsliður, svohljóðandi: Óstimpluð skjöl sem gefin eru út og/eða undirrituð fyrir gildistöku laga þessara eru gjaldskyld samkvæmt lögum þessum.