ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2014 frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Þetta er 3. umr. Nefndarálitið er að finna á þskj. 445.
Það sem við ræðum þarna fyrst og fremst er fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta. Þar er ákveðið að hækka gjald til umboðsmanns skuldara úr 0,0172% og það verði 0,0212% af gjaldstofni sem umboðsmaður skuldara fær greiðslur úr. Það á að standa undir þeim greiðslum sem það kostar að veita fólki styrk vegna gjaldþrotaskipta.
Síðan er stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki. Eins og fram kom í nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar fyrir 2. umr. töldu ýmsir að með tillögum 17. gr. fengju fyrirtæki röng skilaboð. Einnig var talið að áhrif gildandi ákvæða laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki á greiðslustöðu ríkissjóðs væru í raun jákvæð og dregið í efa að lækkun tekjuskattsfrádráttarhlutfalls mundi á endanum skila ríkissjóði þeirri niðurstöðu sem lagt væri upp með. Meiri hlutinn leggur til að IX. kafli laganna, þ.e. 17. gr. frumvarpsins, falli brott. Þetta er gert í tengslum við samkomulag þingflokka um lok þingstarfa fyrir jólahlé Alþingis, þ.e. reglum um styrk til nýsköpunar er ekki breytt, þær eru óbreyttar frá fyrra ári. Þá næst ekki sá sparnaður sem ætlað var enda er það hluti af samkomulaginu.
Síðan er breyting á ákvæðum laga er varða Ríkisútvarpið ohf. Nefndinni barst erindi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Þar kom fram að hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra hefði óskað eftir því við fjárlaganefnd að lögð yrði til breyting á tilteknum lið frumvarps til fjárlaga þar sem gert væri ráð fyrir 150 millj. kr. lækkun útgreiðslu úr ríkissjóði til Ríkisútvarpsins og sömu fjárhæð yrði ráðstafað til hækkunar á lið sem snerti háskólastarfsemi. Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar varð meiri hluti fjárlaganefndar við þessari beiðni og lagði fram breytingartillögu fyrir 2. umr. um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2014.
Til þess að tryggja að ekki verði þörf á frekari aðhaldsaðgerðum hjá Ríkisútvarpinu og að fjármagn fáist til stuðnings við starfsemi háskóla leggur meiri hlutinn til breytingu á 21. gr. frumvarpsins. Þannig verði í henni kveðið á um frestun á gildistöku tiltekinna ákvæða laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, þ.e. ákvæða um aðra starfsemi, um hlutfall viðskiptaboða og fjarkaupainnskota innan hverrar klukkustundar og um tekjustofna.
Síðan ræddi nefndin um starfsendurhæfingarsjóði. Meiri hlutinn leggur til þá breytingu að framlag ríkissjóðs til starfsendurhæfingarsjóða, sem fjármagnað er með hluta af gjaldstofni tryggingagjalds, verði fellt brott á árunum 2013 og 2014.
Þá kemur að lagfæringu á ákvæðum um úrvinnslugjald. Þar er tæknileg útfærsla, en skrifað hafði verið kr./kg í stað kr./stk. Meiri hlutinn leggur til lagfæringar á framangreindu.
Gjöld vegna innlagnar á sjúkrahús, það er hluti af samkomulaginu. Í tengslum við samkomulag þingflokka um lok þingstarfa fyrir jólahlé leggur meiri hlutinn til að XX. kafli, þ.e. 46. og 47. gr. frumvarpsins, falli brott. Þar með verði fallið frá gjaldi vegna innlagnar.
Svo er það leiðrétting á texta nefndarálits fyrir 2. umr. Nefndinni barst ábending þess efnis að meinleg villa hefði slæðst inn í nefndarálit meiri hluta við 2. umr. Í stað orðsins slysatryggingar hefði verið sagt sjúkratryggingar, en það á að sjálfsögðu að vera slysatryggingar. Er það leiðrétt í nefndarálitinu.
Þá bendir meiri hlutinn á að í sama nefndaráliti kemur fram að hann telji að hækkun skólagjalda sé þess bær að hvetja námsmenn til að nýta betur það nám sem opinberir háskólar bjóða upp á. Þarna er um ónákvæma notkun á hugtökum að ræða. Átt er við að hækkun skrásetningargjalda í opinbera háskóla hefði þessi áhrif enda er nemendum í slíkum skólum ekki gert að greiða skólagjöld þó að í öðrum skólum séu skráningargjöld oft flokkuð sem skólagjöld.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt að lokinni umræðu með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Frosti Sigurjónsson, Pétur H. Blöndal, Sigurður Páll Jónsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Brynjar Níelsson.