143. löggjafarþing — 44. fundur,  20. des. 2013.

matvæli.

110. mál
[11:20]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá atvinnuveganefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum um matvæli. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Baldur Erlingsson, Eggert Ólafsson og Ólaf Friðriksson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Pétur Reimarsson frá Samtökum atvinnulífsins og Lárus Ólafsson frá Samtökum verslunar og þjónustu.

Í frumvarpinu er lagt til að innflutningur á efnum og hlutum bætist í upptalningu í 6. gr. laganna þar sem talin eru upp þau atriði sem Matvælastofnun hefur eftirlit með. Hugtakið efni og hlutir er skilgreint í 4. gr. laganna en þar undir heyra til dæmis umbúðir, tækjabúnaður og efni sem geta komist í snertingu við matvæli.

Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að heilbrigðisnefndir hafi eftirlit með framleiðslu og dreifingu efna og hluta sem er ætlað að vera í snertingu við matvæli en Matvælastofnun mun hafa eftirlit með innflutningi þessara vara svo sem fyrr greinir. Þá er í 2. gr. lagt til að þeir sem framleiða eða flytja inn efni og hluti sem ætlað er að vera í snertingu við matvæli skuli tilkynna heilbrigðisnefnd um þá starfsemi áður en hún hefst.

Í 3. gr. frumvarpsins er lagt til að ákvæði 25. gr. laganna þar sem mælt er fyrir um eftirlitsgjald matvælafyrirtækja nái einnig til þeirra sem framleiða eða flytja inn efni og hluti sem ætlað er að vera í snertingu við matvæli.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt og undir það skrifa Jón Gunnarsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Haraldur Benediktsson, Ásmundur Friðriksson, Björt Ólafsdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egilsdóttir.