fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Ég fæ ekki enn skilið hvernig menn geta fengið það út, hv. þingmaður, að þessi forsendubrestur eigi við suma en ekki aðra. Það hlýtur að ganga jafnt yfir alla. Það hefur aldrei verið talað um að þetta sé lausn fyrir öll heimili. Það er verið að tala um lausn fyrir skuldug heimili. Þessi forsendubrestur — það hefur alltaf verið talað um leiðréttingu á lánum yfir ákveðið tímabil. Það er tekin, eins og hv. þingmaður veit, meðalkúrfa, fyrir þetta tímabil er tekin meðalverðbólga. Auðvitað getum við tekið heila mannsævi og einhvern tímann voru þetta neikvæðir vextir og svo jákvæðir vextir. En númer eitt, ef við erum að tala um forsendubrest tökum við eitthvert tímabil þar sem verðbólgan varð meiri og lánin hækkuðu meira, lánin stökkbreyttust á því tímabili. Í einu vetfangi stökkbreyttust lánin, við vitum það, það er sá forsendubrestur sem verið er að laga. Svo eru aðrar aðgerðir til að hjálpa öðrum. Þetta er bara eitt skref. Þetta er einn hluti af þeim aðgerðum sem verið er að gera fyrir heimilin og það hefur alltaf verið talað um að þetta sé fyrir skuldug heimili sem voru með lán á þessu tímabili. Þar varð forsendubresturinn, þess vegna er talað um að það geti verið forsendubrestur hjá einum aðila, hjá einu heimili, af því fólk skuldar eða tók lánið á öðrum tíma, það er verður bara eitt að ganga yfir alla.