tekjuskattur.
Virðulegi forseti. Spegilmyndin af þeirri aðgerð sem við erum að kynna hér í dag eru aðgerðir fyrri ríkisstjórnar. Við erum að taka til baka í dag um það bil þriðjunginn af skattahækkunum fyrri ríkisstjórnar fyrir meðaltekjuhópana. Ef menn líta þannig á að meðaltekjuhóparnir, sem fá núna um 20 þúsund kr. skattalækkun — það gildir fyrir þá sem hafa meðaltekjur — geta menn séð að fyrri aðgerðir sem leiddar voru í lög á síðasta kjörtímabili höfðu um það bil þrefalt þau áhrif í hina áttina, til skattahækkunar.
Það sem við erum að gera er að vinda ofan af skattahækkunum vinstri stjórnarinnar sem var hér við völd síðustu fjögur ár. Við stígum ekki skrefið til fulls enda bjóða ríkisfjármálin ekki upp á það að þessu sinni, en þegar menn skoða aðgerðina í þessu ljósi á að fást svar við þeirri spurningu sem hv. þingmaður ber hér upp: Hvers vegna leggst aðgerðin svona misjafnt í krónum talið á einstaka launahópa? Það er vegna þess að fyrri ríkisstjórn gerði þó það sem hún gat til þess að hlífa þeim sem lægst launin höfðu og skapaði nýtt sérstakt skattþrep fyrir þann hóp. Sá hópur hefur að því leytinu til verið í sérstöku skjóli. Millitekjufólkið hefur ekki verið í skjóli. Það hefur fengið á sig miklar skattahækkanir og við stígum núna fyrstu skrefin til að létta þeim skattahækkunum af og eðlilega koma þá fleiri krónur til þess hóps til baka þegar þær aðgerðir eru kynntar til sögunnar.