tekjuskattur.
Herra forseti. Það er alveg rétt, persónufrádrátturinn mun taka fullri verðlagsuppfærslu, þökk sé lagabreytingu sem við réðumst í strax og við töldum okkur ráða við það. Það var fyrst og fremst í eitt ár sem eiginlega allar fjárhæðir kerfanna voru frystar og fylgdu ekki verðlagi. Það gilti um öll bótakerfin og persónufrádráttinn. Það var botnár kreppunnar.
Hæstv. fjármálaráðherra gerði hér mikilvægan þátt að umtalsefni þar sem eru jaðaráhrifin í kerfinu og notaði það núna sem sérstök rök fyrir því að lækka m.a. prósentuna á miðþrepi. Það er svolítið stutt síðan hæstv. fjármálaráðherra var ekki upptekinn af jaðaráhrifum og heldur ekki meiri hlutinn. Það var í gær og fyrradag þegar vaxtabætur voru skertar um 500 milljónir. Hvernig var það útfært? Með því að herða á tekjutengingunni sem eykur stórkostlega jaðaráhrifin á ákveðnu launabili. Þetta er kannski aðeins snúnara, herra forseti, en menn vilja stundum vera láta. Ég gæti auðvitað haldið um það talsverða ræðu hversu svakalega ríkisstjórnin og meiri hluti hennar jók með þessu jaðaráhrifin, ef menn vilja. Þetta er nú bara eins og það er.
Varðandi svo aftur tekjuskattinn og samskipti við sveitarfélögin, það er út af fyrir sig rétt að nettó situr ekki mikið eftir í ríkiskassanum af skattgreiðslum þeirra sem hafa greitt á lágtekjuþrepi en á móti kemur að býsna drjúgur hluti útsvarstekna sveitarfélaganna fellur til þar og ríkið bætir þá upp slakann eins og fram hefur komið. Það er hluti af þeim miklu tekjusamskiptum sem við höfum verið að ræða.
Tekjuskatturinn er náttúrlega mikilvægasta kjölfestan í skattkerfinu og tekjuöflunarkerfi ríkisins. Við Íslendingar ættum að muna eftir því áður en við göngum glannalega um gleðinnar dyr í sambandi við tekjuskattinn að það var þó hann sem (Forseti hringir.) hélt tekjum ríkis og sveitarfélaga (Forseti hringir.) uppi á botni kreppunnar þegar (Forseti hringir.) froðutekjurnar hurfu (Forseti hringir.) eins og dögg fyrir sólu.