tekjuskattur.
Virðulegur forseti. Mér sýnist allt vera í járnum milli hv. þm. Árna Páls Árnasonar og hv. þm. Helga Hjörvars. Hv. þm. Helgi Hjörvar á þó eitt andsvar eftir.
Hvað varðar athugasemdir hv. þingmanns bera þær vott um svolítið sérkennilega nálgun. Reyndar eru þær mjög líkar þeirri afstöðu sem birtist í andsvörum hv. þm. Árna Páls Árnasonar, þ.e. að ef menn semji við fólk eða reyni að eiga samráð, t.d. við aðila vinnumarkaðarins, þá beri það merki þess að stjórnvöld séu að láta beygja sig. Þetta skýrir kannski ýmislegt um hvers vegna hlutirnir gengu fyrir sig eins og þeir gerðu á síðasta kjörtímabili. Þar töldu menn greinilega að það að eiga samráð og reyna að komast að niðurstöðu sem sem flestir gætu sætt sig við væri á einhvern hátt veikleikamerki fyrir stjórnvöld. Það er öðru nær.
Hins vegar verð ég líka að geta þess að þau atriði sem hv. þingmaður taldi upp voru ekki rétt. Til dæmis þegar hv. þingmaður sagði að ríkisstjórnin hefði haft fyrirætlanir um að taka til baka desemberuppbót til atvinnulausra. Hvað var um að ræða þar? Þar var um að ræða fjárlög ársins 2013, fjárlög síðustu ríkisstjórnar sem hafði ekki sett nógu mikið fjármagn í þau fjárlög til þess að menn hefðu efni á því að greiða desemberuppbót. Hæstv. félagsmálaráðherra lýsti því strax yfir að að sjálfsögðu vildi ráðherrann greiða út desemberuppbót en það væru ekki til peningar í sjóðnum, þeir væru búnir. En það tókst að finna þá sem gerði ráðherranum kleift að greiða út uppbótina.
Þannig hefur hvert vandamálið á eftir öðru verið leyst við þessa fjárlagagerð nú á lokasprettinum en enn eru fjárlögin hallalaus, nokkuð sem við sáum aldrei á síðasta kjörtímabili (Forseti hringir.) þar sem ár eftir ár var haldið áfram að bæta skuldum á ríkissjóð.