143. löggjafarþing — 47. fundur,  21. des. 2013.

tekjuskattur.

265. mál
[17:40]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Við 1. umr. kom í ljós sá ágalli á málatilbúnaðinum að breytingin var í eðli sínu tímabundin. Það bauð heim þeirri hættu að verkalýðshreyfingin stæði frammi fyrir því að þurfa að kaupa aftur þessa leiðréttingu í lok næsta árs. Því var einboðið að finna lagatæknilega leið til að tryggja að þessi breyting, hækkun frá lágtekjuþrepi upp í meðalþrep, yrði gerð varanleg.

Ég vil líka taka skýrt fram, vegna ummæla í greinargerð með frumvarpinu, að við í Samfylkingunni deilum ekki áhuga ríkisstjórnarinnar á að fletja út tekjuskattskerfið heldur bindum þvert á móti vonir við það að áfram verði byggt á þessu fordæmi, að við stöndum vörð um fjölþrepa skattkerfið og tryggjum framgang þess fram í tímann.