fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sitjum hjá við þessa atkvæðagreiðslu og vitum að útfærsla hennar verður rædd mun nánar á vorþingi. Við höldum til haga þeim sjónarmiðum sem við höfum haldið á lofti, að það skipti máli að þegar við förum í svona ráðstafanir nýtist þær þeim sem á þurfa að halda og að við hugum að þeim sem mest þurfa á hjálp að halda í samfélaginu, að tekið sé tillit til félagslegra sjónarmiða þegar ríkið kemur að með aðstoð við þá sem eiga í vandræðum á húsnæðismarkaði, hvort sem það eru eigendur eða leigjendur. Það eru þau sjónarmið sem við eigum að hafa að leiðarljósi í okkar verkum.