143. löggjafarþing — 49. fundur,  14. jan. 2014.

framhaldsfundir Alþingis.

[13:36]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Forseti Íslands gerir kunnugt:

„Ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 14. janúar 2014 kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 10. janúar 2014.

Ólafur Ragnar Grímsson.

 

___________________________

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Ég býð hæstv. forseta, hv. alþingismenn, svo og starfsmenn Alþingis velkomna til starfa á nýju ári.