breytingar á skattkerfinu.
Virðulegur forseti. Það verður ekki hjá því komist að ítreka aftur þann samanburð sem ég gerði hér áðan á þeirri stefnu sem núverandi ríkisstjórn rekur, m.a. í skattamálum, og síðasta ríkisstjórn. Eða hafa kjör þeirra lægstlaunuðu eða millitekjuhópa eða nokkurra versnað frá því að síðasta ríkisstjórn kom með stefnu sína og innleiddi hana? Nei, þvert á móti. Þannig að þegar hv. þingmaður heldur því fram að núverandi ríkisstjórn geri ekki nógu mikið fyrir ákveðna hópa þá gerði síðasta ríkisstjórn það svo sannarlega ekki heldur.
Hv. þingmaður spyr: Hvernig er best hægt að bæta kjör þeirra lægstlaunuðu? Þar greinir okkur sjálfsagt á vegna þess að það er ekki best að bæta kjör þeirra lægstlaunuðu í gegnum skattkerfið. Áhrifin af slíkum breytingum fyrir þá lægstlaunuðu eru miklu minni en fyrir aðra. Þar verður að koma til raunveruleg kjarabót, raunveruleg launahækkun og hvernig verður hún til? Hún verður til með aukinni verðmætasköpun og með því að innleiða lög sem fela í sér hvata til þess að greiða hærri laun en ekki hindranir eins og við sáum allt of mikið af á síðasta kjörtímabili, hindranir sem stuðla ekki að hærri launagreiðslum, aukinni vinnu eða aukinni verðmætasköpun heldur þvert á móti. Í þessi felst grundvallarstefnumunur á núverandi ríkisstjórn og þeirri síðustu. Við munum sjá það á næstu missirum og árum hvor leiðin er betur til þess fallin að bæta kjör þeirra lægstlaunuðu.