endurskoðun jafnréttislaga.
Virðulegi forseti. Nú á haustdögum var haldið mikið þing í Brussel í Belgíu þar sem þingkonur frá öllum heimshlutum komu saman og héldu þing. Þar vorum við Íslendingar verðlaunuð fyrir okkar góðu stöðu hvað varðar jafnréttismál og líka fyrir að hafa lagt okkur mjög fram með lagasetningu og öðru til að ná þeim árangri sem við höfum náð í þeim efnum.
Við vorum svo ánægð með þetta að það fóru hvorki fleiri né færri en þrír ráðherrar úr hæstv. ríkisstjórn til að taka á móti viðurkenningunni, þar á meðal hæstv. ráðherra iðnaðar og viðskiptamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir. Hún var þó ekki fyrr komin heim en hún vakti máls á því að eitt af þeim verkfærum sem hefur verið í gildi frá því í september sl. verði hugsanlega endurskoðað og jafnvel með það fyrir augum að nema það úr gildi í samræmi við afstöðu sem hún sjálf hefur haft í málinu og viðraði þegar málið var samþykkt hér á sínum tíma.
Þetta þykir mér miður og þá kannski ekki síst í ljósi þess að þegar hæstv. ráðherra fjallaði um málið á sínum tíma í þinginu sagði hún í þessum ræðustól að þrátt fyrir að hún væri mikill jafnréttissinni vildi hún ekki eingöngu fá sæti í stjórn eða þingsæti vegna þess að hún væri kona. Þar með er það útgangspunkturinn í þessu, að þegar höfum breytt lögunum með þessum hætti fái konur eingöngu sæti í stjórnum af því að þær eru konur.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra sagði frá því að í Keflavík væri þetta kallað að vera súkkulaðikleina. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Leggur hún til þessa breytingu vegna þess að eftir að lögin tóku gildi hefur konum sannarlega fjölgað í stjórnum fyrirtækja á Íslandi? Lítur hún svo á að hennar spádómur um að þarna yrðu stjórnir fyrirtækja meira og minna skipaðar einhverjum súkkulaðikleinum, þ.e. konurnar sem þar eru skipaðar eftir að lögin voru samþykkt, er það á þeim grundvelli sem hæstv. ráðherra telur að að endurskoða þurfi þennan þátt löggjafarinnar og þetta ákvæði í lögunum?