143. löggjafarþing — 49. fundur,  14. jan. 2014.

staða verndarflokks rammaáætlunar.

[14:55]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Ég þakka líka þá umræðu sem hér hefur farið fram. En ég vil rifja upp að þegar tilkynnt var um frestun undirritunar hæstv. ráðherra á stækkun friðlandsins sl. sumar voru tilgreindar tvær ástæður fyrir því, annars vegar að eitthvað hefði verið brogað við málsmeðferð Umhverfisstofnunar sem þyrfti að lagfæra og hins vegar að það væru umsagnir frá sveitarfélögum sem þyrfti að taka til frekari skoðunar.

Í bréfi ráðherra núna 27. desember er hvorugt þessa tilgreint, það kemur í ljós að hvorug þessara ástæðna var til grundvallar því að ákveðið var að fresta undirrituninni og koma með breytta útfærslu. Það er því ekki annað að sjá en að það eina sem hafi ráðið ákvörðun hæstv. ráðherra sé hugmynd Landsvirkjunar um breytta útfærslu á virkjuninni. Það væri ágætt að hæstv. ráðherra útskýrði hvernig stendur á þessum mismun í skýringum.

Hitt vil ég segja að það hvernig hæstv. ráðherra hefur fjallað um þá vísindamenn og þá niðurstöðu sem fagmenn hafa fært rök fyrir er ómálefnalegt og það er ómaklegt og ósanngjarnt. Það er alvarlegt þegar stjórnmálamenn tala með þessum hætti um fagmenn og vísindamenn sem hafa verið fengnir til þess að vinna verk í þágu þjóðar sinnar. Ég hefði satt best að segja búist við því, virðulegur forseti, að hæstv. umhverfisráðherra mundi nota tækifærið í þessari umræðu og biðja viðkomandi vísindamenn og fagmenn afsökunar á ummælum sínum. Það finnst mér sjálfsagt að gera. Það getur hent okkur að láta þung orð falla í hita leiksins en þessi fullyrðing hæstv. ráðherra stenst ekki skoðun. Hún hefur ekki efnisleg rök með sér, það er í þremur atriðum búið að sýna fram á að forsendurnar sem hæstv. ráðherra byggir ákvörðun sína á eru rangar og það er það sem þessir fagmenn gerðu. Það er sjálfsagt að þeir geri það og það er ekki pólitík.