raflínur í jörð.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessari skýrslu. Hún er greinilega með mikið innihald og fróðlegur lestur. Mér er minnisstætt þegar ég var í sveit sem ungur drengur. Þá var ekki komið rafmagn norður í Húnavatnssýslu en hins vegar var verið að leggja rafmagn þar um sveitir það sumar og það var mikil tilhlökkun hjá fólkinu sem þar bjó. Línurnar voru lagðar um túnin og fólki fannst það alveg sjálfsagt, það tók því fagnandi. Við megum ekki gleyma hversu dýrmætt rafmagnið er fyrir okkur. Það er ekki sjálfsagt að við höfum rafmagn heim í hvern einasta bæ og getum gengið að rafmagninu vísu í rekstri okkar hvar sem er.
Ég hef gluggað aðeins í þessa skýrslu. Mig langar að byrja á umsögn Landsnets til marks um hvað er mikilvægt að við förum að taka ákvörðun og drögum það ekki lengi, með leyfi forseta:
„Landsnet leggur mikla áherslu á að fá afgerandi niðurstöðu í stefnu um jarðstrengjamál þar sem mjög mikilvægar framkvæmdir eru í biðstöðu og hafa sumar verið í biðstöðu í rúm fjögur ár, m.a. vegna óvissu um þessi mál. Eins og komið er, er fyrirtækið ekki í stakk búið að uppfylla lögbundnar skyldur sínar og flutningstakmarkanir hafa veruleg áhrif á þróun orkuviðskipta í landinu. Sem dæmi má nefna rafvæðingu fiskmjölsverksmiðja, sölu á orku, sem þegar er til í kerfinu milli landshluta og takmarkana á vinnslugetu einstakra virkjana.“
Það er brýnt að við tökum ákvörðun í þessu máli. Við megum ekki draga það. Ég hef fulla trú á því að atvinnuveganefnd fari í þessa vinnu af heilum hug.
Við verðum samt alltaf að hugsa um kostnaðinn. Neytendasamtökin segja, svo ég vitni aðeins í þau, með leyfi forseta:
„Sjónarmið samtakanna eru þau að nauðsynlegt er að stjórnvöld móti stefnu og æskilegt væri að hún verði þess ekki valdandi að kostnaði verði hleypt fram úr hófi með tilheyrandi verðhækkunum til almennings. Að mati Þóru [Guðmundsdóttur sem kynnti sjónarmið Neytendasamtakanna] er skynsamlegt að fara bil beggja í stefnumótuninni.“
Mér heyrist á máli manna hvar sem þeir eru í pólitík að þetta sé skoðun þeirra, að það sé reyndin.
Hjá Samtökum atvinnulífsins:
„Fram kom að kostnaður við uppbyggingu raforkukerfis veltur allur út í raforkuverð og að flutningur og dreifing raforku vegur þyngra í heildarorkuverði hérlendis en í nágrannalöndum.“
Ef við berum okkur saman við önnur lönd, hvað er að gerast hér og hvað er að gerast í nágrannalöndunum? Á Íslandi er stefna Landsnets sú að á 66 kílóvolta spennustigi eru jarðstrengir skoðaðir til jafns við loftlínur. Á 132 kílóvolta spennustigi eru jarðstrengslausnir skoðaðar í þéttri byggði á styttri vegalengdum og við tengingu einstakra viðskiptavina. Á hæsta núverandi spennustigi Landsnets, 220 kílóvoltum, er jarðstrengslausn ekki talin tæknilega eða kostnaðarlega fýsileg. Hún kemur eingöngu til athugunar á styttri köflum með tilliti til flutningsgetu.
Í Noregi er stefnan sú að alfarið eru notaðir jarðstrengir á lægri spennum upp að 22 kílóvoltum, á 66 kílóvoltum og 123 kílóvoltum eru loftlínur meginreglan nema á svæðum þar sem verja þarf línu fyrir álagi eða vegna mikilla sjónrænna áhrifa, þar skal nota jarðstreng.
Í Danmörku er mest ofan í jörðu nema á allra hæstu spennistöðvum. Landið er þannig úr garði gert að einfalt er að plægja þar niður. Aðstæður í Danmörku eru um margt gjörólíkar aðstæðum á Íslandi því að þar er byggð mjög þétt og jarðvegur ákjósanlegur fyrir lagningu strengja.
Frakkland. Árið 1999 sló út stór hluti af franska raforkukerfinu í óveðri sem gekk yfir landið. Í kjölfarið tóku yfirvöld þá stefnumótandi ákvörðun að koma auknum hluta kerfisins í jörð til að tryggja raforkuframboð við slæm veðurskilyrði.
Virðulegi forseti. Ég treysti því að við mótum hér stefnu í þessum málum og gerum það fyrr en seinna svo að við getum hafið framkvæmdir.