143. löggjafarþing — 49. fundur,  14. jan. 2014.

raflínur í jörð.

60. mál
[17:23]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrri þingum fyrir að koma á fót þeirri vinnu sem hér er fjallað um og þakka jafnframt núverandi ráðherra málaflokksins, Ragnheiði E. Árnadóttur, fyrir að leggja þá vinnu fram í dag til umræðu þessa þings.

Eins og skýrslan um mótun stefnu um lagningu raflína í jörð reifar ágætlega er spurningin um að auka hlutverk raflína í jörðu nokkuð stór. Það er margt sem liggur undir og margar hliðar á teningnum. Við erum í fyrsta lagi að ræða flutningskerfi raforku, aðgengi og afhendingaröryggi orku til heimila og orkufyrirtækja, sem er auðvitað flestum landsmönnum ekkert sérstakt áhyggjuefni en því miður er ekki svo fyrir alla. Því erum við um leið að ræða byggðasjónarmið, um getu byggðarlaga til að vaxa og dafna, getu þeirra til að byggja upp fyrirtæki og kynda hús sín á sama hátt og við á suðvesturhorninu getum án mikilla vandkvæða. Við erum að ræða nýtingu lands, samráð við bændur og aðra landeigendur þegar raflínur eru lagðar.

Það eru stórar spurningar um tæknileg atriði, um tíðni viðgerða og eins aðgengi til viðgerða á mismunandi gerðum strengja. Þá þarf að meta flutningsgetu mismunandi gerða strengja og máta við þörf á hverjum stað fyrir sig.

Svo er það auðvitað stóra spurningin sem liggur undir og er spurningin um náttúruvernd, um umhverfisáhrif og sjónmengun og einnig stórar spurningar um ferðamennsku þegar við seljum Ísland sem ósnortið land til ferðamanna.

Að lokum er það kostnaðurinn. Þá er mikilvægt, eins og kemur fram í skýrslunni, að athuga allan kostnað eða svokallaðan líftímakostnað sem tiltekur ekki einungis byggingarkostnað heldur líka allan rekstrarkostnað.

Nefndin sem skilaði þessari ágætu skýrslu kom sér saman um að gera fjögur meginatriði að tillögum sínum. Þau eru eftirfarandi: Að breyta vinnuferli í kringum kerfisáætlanir og innleiða þriðju raforkutilskipun ESB og sjónarmið hennar varðandi kerfisáætlun hér á landi í íslensk lög. Í annan stað að setja fram valkostadreifingu fyrir einstakar framkvæmdir. Í þriðja lagi að setja fram almenn viðmið um hvenær jarðstrengir skulu valdir umfram línu þrátt fyrir kostnaðarauka og aðrar grundvallarreglur. Í fjórða lagi að leggja aukna áherslu á rannsóknir, bæði umhverfisrannsóknir og hagfræði- og kostnaðargreiningar.

Mig langar að auki að reifa hvað mismunandi hagsmunaaðilar lögðu áherslu á í skýrslunni auk hinna sameiginlegu tillagna. Forsvarsmenn Landsnets í nefndinni fagna starfi nefndarinnar enda sé nauðsynlegt, svo ég vitni í þá, fyrir fyrirtækið að fá leiðbeiningar eða stefnu frá stjórnvöldum um hvernig haga skuli uppbyggingu flutningsnetsins. Landsnet lítur á að stefnumótun varðandi raflínur í jörðu eða lofti séu samfélagslegt verkefni og ekki hægt að leggja alfarið á fyrirtækið að taka eitt og sér slíkar ákvarðanir. Ákvarðanir í þá veru eru af þeirri stærðargráðu fyrir þjóðfélagið að nauðsynlegt sé að kalla eftir stefnumótun stjórnvalda. Þetta tel ég vera mjög skynsamlegt, ef niðurstaðan verður að auka hlut raflínu í jörðu. Þrátt fyrir að það kalli á aukinn beinan kostnað er það auðvitað pólitísk ákvörðun. Landsnet getur ekki tekið þannig ákvörðun eitt og sér og að sjálfsögðu þarf þá, ef sú verður niðurstaðan, Alþingi að láta auknar fjárveitingar fylgja þeirri ákvörðun.

Bændasamtökin fjölluðu um það að þótt jarðstrengir hafi að jafnaði minni áhrif á uppbyggingu og umsvif á bújörðum en loftstrengir þá tengjast þeim ákveðnar kvaðir engu að síður. Þeir leggja auk þessa áherslu á samræðu, bændur og landeigendur allt frá því að hugmynd um lagningu jarðstrengs kemur fram. Því var fulltrúi landeigenda í nefndinni sammála.

Fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í nefndinni, Bryndís Skúladóttir, minnti á að raforkuflutningur er nauðsynlegur hluti af innviðum samfélagsins en að kostnaður við uppbyggingu raforkukerfisins velti allur út í raforkuverð og að flutningur og dreifing raforku vegi þyngra í heildarorkuverði hérlendis en í nágrannalöndunum.

Að lokum langar mig að koma inn á það sem Landvernd hafði að segja um málið og lesa má í skýrslunni á bls. 7 og 8. Þar eru megintillögur þeirra eða áherslur ef fólk vill kynna sér þær en auk þeirra hefur Landvernd, eins og kom fram í máli ráðherra og annarra áðan, látið gera skýrslu fyrir sig um kostnað og ber saman loftlínur og jarðstrengi. Þar eru menn ekki sammála Landsneti og segja að kostnaðarmunurinn sé ekki svona gríðarlega mikill. Þetta er auðvitað eitthvað sem þarf að skoða betur.