raflínur í jörð.
Hæstv. forseti. Mig langar fyrst af öllu að þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja fram þessa skýrslu og þakka fyrir umræðuna sem hefur verið mjög góð.
Það er augljóst að þessi skýrsla er einungis byrjunin á lengri vegferð en í sjálfu sér liggur okkur allnokkuð á vegna þess að afhendingaröryggi á raforku á Íslandi er mjög ábótavant og á það sérstaklega við um hinar dreifðu byggðir. Annað er að allmikið er af ónýttri orku í kerfinu okkar núna sem fellur óbætt hjá garði og þess vegna liggur okkur meira á en ella að setja ákveðna stefnu um það hvernig við viljum haga þessum málum.
Hins vegar koma í ljós þegar maður les skýrsluna, sem verður verðugt verkefni fyrir atvinnuveganefnd að fara í gegnum, mismunandi sjónarmið og sérstaklega vekur athygli mína sá munur sem virðist vera á upplýsingum um kostnað sem hinir ýmsu aðilar hafa. Á bls. 15 í skýrslunni segir til dæmis, með leyfi forseta:
„Í umfjöllun nefndarinnar lagði fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga fram gögn er sýndu að á síðasta ári var tekinn í notkun 220 kílóvolta jarðstrengur í Danmörku (svokallaður Anholtsstrengur) og reyndist stofnkostnaður á kílómetra einungis um 1,5 sinnum hærri en áætlaður kostnaður 220 kílóvolta loftlínu í áætlunum Landsnets; Blöndulína 3.“
Þetta ásamt skýrslu sem hefur komið hérna fram frá Landvernd og upplýsingum sem einnig komu fram í byrjun árs í Bændablaðinu, um reynslu Frakka af lagningu jarðstrengja, sýnir okkur að við þurfum að fara mjög gaumgæfilega ofan í alla þessa útreikninga.
Hitt er að það er ekkert einboðið að endilega sé umhverfisvænt að leggja jarðstrengi hvar sem er. Til dæmis virðist manni og sýnist nú eftir lestur skýrslunnar að lagning jarðstrengs um svæði þar sem hraun liggur valdi jafnvel meiri umhverfisáhrifum og meiri sárum en ef um loftlínu væri að ræða. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að vera við Búðarháls á föstudaginn var þar sem tengivirki var tekið í notkun. Það er náttúrlega ævintýralegt að sjá hversu vel hefur tekist til þar að setja þrjár virkjanir nánast í einn hnapp með lágmarksáhrifum á umhverfið. Auðvitað þurfum við að gæta varúðar í þessu. Okkur vantar sterkari tengingar milli landshluta og þá snýst spurningin um það hvort menn taki þann kost að leggja fáar stórar línur sem yrðu þá væntanlega loftlínur eða að leggja í jörð. Ég viðurkenni að þegar við tölum um línu yfir Sprengisand held ég að það hljóti að koma til álita að menn skoði það gaumgæfilega hvort ekki sé hagkvæmt eða hagkvæmara en ella að leggja jarðstreng samhliða lagningu létts hálendisvegar sem menn hafa komið fram með þingsályktunartillögu um.
Ég held að þetta séu allt saman atriði sem við þurfum að skoða mjög gaumgæfilega og fara rækilega yfir kosti og galla hvers fyrir sig. En að sjálfsögðu sér maður þetta þannig fyrir sér að á endanum verði farin blönduð leið þar sem við gætum hagkvæmni og þess að valda sem minnstri röskun á umhverfinu.
Nú er Landsneti uppálagt lögum samkvæmt að velja ávallt hagkvæmasta kost en þá er líka spurning að taka ekki bara stofnkostnaðinn heldur líftímakostnaðinn og ef sá kostnaður er jafnvel farinn að nálgast hagkvæmari kostinn þá verði Landsneti heimilað að velja ekki endilega hagkvæmustu leið heldur þá leið sem sameinar best hagkvæmni og minnst umhverfisáhrif.
Ég heyri ekki betur á umræðunni en menn séu nokkuð sammála hér. Ég vona að málið fái góða umfjöllun. Ég hlakka til að fást við það í atvinnuveganefnd og fara rækilega yfir það og kalla til sérfræðinga þar um.