143. löggjafarþing — 49. fundur,  14. jan. 2014.

raflínur í jörð.

60. mál
[17:51]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil fagna þessari umræðu. Mér heyrist flestir þingmenn vera á sömu blaðsíðu. Ég held að allir séu sammála um að fara blandaða leið, það er sammerkt með málflutningi flestra, sem byggir á því að við setjum jarðstrengi þar sem þeir eiga við og þar sem gott er að koma þeim við. Það er mjög hagkvæmt, bæði fjárhagslega og umhverfislega séð, að setja lágspennulagnir í jörð en háspennulínur með hærri spennu eru að mér sýnist sama hvar, sama hvaða lönd miðað er við, þótt það sé mjög hagstætt að setja þær í jörð, ekki valkostur hjá þeim. Það er einhvern veginn þannig að háspennulínurnar þurfa meira landsvæði.

Við tölum um sjónmengun og ég get alveg tekið undir það sem hefur komið fram að auðvitað er þetta líka umhverfismál og sjálfsagt að umhverfisnefnd fjalli um þessa skýrslu og gefi álit sitt. Ég set þó spurningarmerki við kostnaðarmatið. Hvað ætlum við að miða við? Er það þjóðhagslega hagkvæmt eða er þetta spurning um verð á landi? Hvernig ætlum við að verðleggja land? Það getur verið ansi mikill munur á því frá einum stað til annars. Það eru því nokkrir punktar sem koma þar. Sama gildir um gjaldtökuna, eins og fram hefur komið, þ.e. vörugjald á strengjum en ekki á línum. Kosturinn við loftlínur, þótt það sé sjónmengun af þeim og þær séu meira áberandi eru þær að sama skapi meira afturkræfar en hinar, svona fyrir næstu kynslóð. Hvað ætlum við að horfa langt fram í tímann? Það er tiltölulega lítið mál að taka þær niður og þá verður landsvæðið nánast svipað á eftir. Sjónmengunin er meiri af loftlínunum en jarðraskið er meira af jarðstrengjunum. Þess vegna verður niðurstaðan, að því er virðist, blönduð leið. Sums staðar hentar jarðstrengur bæði fjárhagslega og umhverfislega. Það getur verið í kringum flugvelli eða einhverjar náttúruperlur, í þéttbýli. Mér heyrist flestir vera á svipuðum nótum með þetta og ég fagna því.