143. löggjafarþing — 49. fundur,  14. jan. 2014.

viðbótarbókun við samning um tölvubrot.

228. mál
[19:43]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F):

Virðulegi forseti. Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar viðbótarbókunar við samninginn um tölvubrot sem gerð var í Strassborg 28. janúar 2003 þar sem verknaðir sem lýsa kynþátta- og útlendingahatri og framdir eru með því að hagnýta tölvukerfi eru gerðir refsinæmir.

Samningur Evrópuráðsins um tölvubrot var undirritaður í Búdapest 23. nóvember 2001. Samningurinn er fyrsti og eini alþjóðasamningurinn sem fjallar um glæpi sem framdir eru á internetinu eða um önnur tölvunet og í honum er sérstaklega fjallað um höfundarétt, fölsun og svik tengd tölvum, barnaklám og brot gegn öryggi tölvukerfa, tölvuneta og tölvugagna. Markmið viðbótarbókunarinnar er að berjast gegn kynþátta- og útlendingahatri án þess þó að skerða grundvallarrétt til tjáningarfrelsis, en bókunin skuldbindur samningsríkin til að gera verknaði refsiverða sem lýsa kynþátta- og útlendingahatri og framdir eru með því að hagnýta tölvukerfi.

Samhliða framlagningu þingsályktunartillögu þessarar leggur innanríkisráðherra fram frumvarp um breytingu á almennum hegningarlögum sem nauðsynlegar eru til að Ísland geti staðið við þær skuldbindingar sem viðbótarbókunin felur í sér.

Ég legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.