viðbótarbókun við samning um tölvubrot.
Virðulegi forseti. Það er oft sem við lendum í þeirri aðstöðu hér að æskilegt væri að vera með, samhliða umræðu eins og þessari, það frumvarp sem á að fylgja með, þá mundum við fá ákveðna, skýrari og betri mynd.
Ég skil ekki málið þannig og skil ekki þessa bókun eða viðbótarbókun sem við erum að tala um að fullgilda með þeim hætti sem hv. þingmaður lýsti, að sá sem rekur stórt gagnaver eða slíkt geti talist ábyrgur sé honum ekki kunnugt í það minnsta um það hvað hann er að hýsa. Ég er alls ekki að biðja hv. þingmann að vera til friðs með nokkrum hætti, bara að taka hreinlega þátt í og miðla þeirri þekkingu sem þingmaðurinn býr yfir varðandi þessi mál.
Ég held að við séum öll sammála í rauninni um það að við verðum að gæta að því að borgarar landsins séu ekki ofsóttir eða beittir einhvers konar hatursáróðri á netinu eins og annars staðar, en að sama skapi ber okkur skylda til þess að gæta að því að við setjum ekki slíkar reglur um málfrelsi eða tjáningarfrelsi þegnanna að nokkur maður geti ekki tjáð sig án þess að eiga á hættu að vera dæmdur eða það sé refsivert. Þarna er mjög fín lína sem við þurfum að finna. Ég vonast til þess að með því að gera ákveðna fyrirvara við hluta þessarar bókunar takist okkur að finna þá línu.