störf þingsins.
Hæstv. forseti. Rétt fyrir jól voru undirritaðir nýir kjarasamningar sem ber að fagna sérstaklega, þeir eru hófsamir. Menn hafa sýnt mikla ábyrgð sem stóðu að þessum samningum, en að sjálfsögðu byggjast undirtektir við þá á því hvernig aðrir þættir skipast.
Það hefur komið fram að margir aðilar hafa gefið í skyn og framkvæmt að halda aftur af hækkunum, jafnvel dregið til baka hækkanir sem þeir stóðu fyrir. Þá vakti sérstaklega athygli mína að stærsta verslunarkeðja landsins, sem hefur yfir að ráða heildsölu, smásölu, kjötvinnslu og sérvöruverslunum, hefur boðist til að lækka valdar vörutegundir um 2,5%. Íslenska krónan styrktist á milli næstliðinna áramóta, þ.e. 2012/2013, til áramóta 2014, um 10–11% að meðaltali gagnvart helstu myntum, minnst gagnvart evru og danskri krónu 6,1%, mest gagnvart jeni 33%. Og menn ætla að lækka vöruverð um 2,5%.
5% af styrkingu krónunnar voru komin fram í júlí sl. — og þá lækkaði ekki vöruverð. Ég bið hæstv. forseta að virða það við mig að ég hoppa ekki af kæti og hrópa ekki húrra fyrir þessari verslunarkeðju. Ég verð reyndar bara að segja við þetta ágæta fólk: Betur má ef duga skal. Ef menn ætla að skila til baka til almennings í landinu virkilegum kjarabótum hljóta menn að taka þessi 2,5% til gaumgæfilegrar athugunar og endurskoðunar því að íslenskur almenningur á þetta inni hjá þessum fyrirtækjum.