störf þingsins.
Hæstv. forseti. Í þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar, um aðgerðir vegna skuldavanda heimila, er að finna 10 liði. Í lið 4 þeirrar aðgerðaáætlunar er að finna fyrirmæli um að skipuð verði verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála undir forustu og á ábyrgð hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra og eins og tillagan ber með sér þarf að huga að mörgum þáttum.
Virðulegi forseti. Ég ætla hér að ræða þennan lið í samhengi við Íbúðalánasjóð og mögulegt hlutverk hans og framtíð. Umræða er allt í kring í fjölmiðlum og hér á Alþingi, fyrirsagnir fjölmiðla fjalla um bráðavanda á húsnæðismarkaði og að Íbúðalánasjóður gæti þurft yfir 9 milljarða framlag, þetta skellur hér á á sama tíma og við erum að ljúka umræðu um skýrslu um Íbúðalánasjóð í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Við munum, virðulegi forseti, hér á Alþingi þurfa að taka yfirvegaða og vandaða ákvörðun um Íbúðalánasjóð og hana á í mínum huga að taka í takt við framtíðarskipan húsnæðismála sem við viljum sjá hér í fyrirsjáanlegri framtíð. Við höfum hingað til staðið vörð um sjóðinn enda engin ástæða til annars. Sjóðurinn er að takast á við afleiðingar hruns, afskriftir jukust og meðal annars vegna þeirra leiða sem við kusum sjálf að fara til að hjálpa skuldurum til að takast á við kúfinn.
Virðulegi forseti. Í lánasafni sjóðsins felast gríðarleg verðmæti og við eigum að gefa okkur tíma í að vinna með þessi verðmæti og þá mun skuldaleiðréttingin, sem fram undan er, trimma lánin niður og gera þau viðráðanlegri fyrir heimilin og auka gæði lánasafnsins. Það er mín trú að við getum tryggt (Forseti hringir.) verðmætt lánasafn og skilað til baka því eiginfjárframlagi sem lagt hefur verið (Forseti hringir.) til sjóðsins á undanförnum árum.