143. löggjafarþing — 50. fundur,  15. jan. 2014.

almenn hegningarlög.

109. mál
[18:31]
Horfa

Frsm. minni hluta allsh.- og menntmn. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti minni hlutans með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum. Er það mismunun á grundvelli kynvitundar og viðbótarbókun við samning Evrópuráðsins um tölvubrot.

Minni hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins sem er að draga úr hatursáróðri og hatri almennt. Minni hlutinn telur hins vegar að algjört bann við ákveðnum skoðunum og tjáningu þeirra sé í grundvallaratriðum röng aðferð. Ekki verður tekist á við hatur í heiminum með því að banna hatur eða tjáningu þess. Við tökumst á við hatur með upplýsingu, umræðu og rökræðu. Takmörkunum á tjáningarfrelsi á ekki að beita nema til verndar réttindum annarra, svo sem réttinum til friðhelgi einkalífs og borgaralegs öryggis. Jafnvel þótt hatursáróður geti verið til þess fallinn að ógna öryggi manna eru nú þegar ákvæði í almennum hegningarlögum sem taka á slíku og um þau er enginn ágreiningur, nefnilega 1. mgr. 233. gr. laga nr. 19/1940, almennra hegningarlaga.

Minni hlutinn telur það geta verið málinu til bóta að breyta refsingu ákvæðisins á þann veg að ekki yrði heimilt að dæma menn til fangelsisvistar fyrir að tjá skoðanir sínar, enda til efs að slíkar heimildir standist nýrri viðhorf til mannréttinda, og þá sérstaklega með hliðsjón af 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þrátt fyrir að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi ekki lýst því með skýrum hætti yfir að refsiákvæði sem takmarka tjáningarfrelsi séu andstæð sáttmálanum hefur dómstóllinn í auknum mæli gagnrýnt beitingu refsinga á þessu sviði, ekki síst fangelsisrefsinga. Þá hefur Evrópuráðið einnig ályktað um að rétt sé að ríki endurskoði refsiákvæði vegna ærumeiðinga.

Minni hlutinn leggur því til þær breytingar á frumvarpinu að fangelsisrefsing verði felld brott úr 233. gr. a, sem og öðrum ákvæðum almennra hegningarlaga sem setja tjáningarfrelsinu skorður.

Minni hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingum:

1. Á undan 1. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:

a. (1. gr.)

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 95. gr. laganna:

a. Orðin „eða fangelsi allt að 2 árum“ í 1. málsl. falla brott.

b. 2. málsl. fellur brott.

b. (2. gr.)

Orðin „eða fangelsi allt að 3 mánuðum“ í 125. gr. laganna falla brott.

2. Orðin „eða fangelsi allt að 2 árum“ í 2. gr. falli brott.

3. Á eftir 2. gr. komi fimm nýjar greinar, svohljóðandi:

a. (5. gr.)

Í stað orðanna „fangelsi allt að tveimur árum“ í 233. gr. b laganna kemur: sektum.

b. (6. gr.)

Orðin „eða fangelsi allt að 1 ári“ í 234. gr. laganna falla brott.

c. (7. gr.)

Orðin „eða fangelsi allt að 1 ári“ í 235. gr. laganna falla brott.

d. (8. gr.)

Í stað orðanna „fangelsi allt að 2 árum“ í 1. mgr. 236. gr. laganna kemur: sektum; og orðin „eða fangelsi allt að 2 árum“ í 2. mgr. sömu greinar falla brott.

e. (9. gr.)

Orðin „eða fangelsi allt að 1 ári“ í 240. gr. laganna falla brott.

4. Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (afnám fangelsisrefsinga fyrir tjáningu skoðana, mismunun á grundvelli kynvitundar og viðbótarbókun við samning Evrópuráðsins um tölvubrot).

Þegar kemur að takmörkunum á tjáningarfrelsi er hætt við því að umræðan fari að snúast um hvort þær séu réttmætar yfir höfuð eða ekki réttmætar yfir höfuð. Það eru mistök. Við búum sem betur fer í landi og í heimi, alla vega í hinum svokallaða vestræna heimi, þar sem við höfum tiltekin réttindi og við höfum þau réttindi ekki að ástæðulausu. Á meðal réttindanna er tjáningarfrelsið. Andstætt því sem almennt er talið er tjáningarfrelsið ekki einstaklingsfrelsi. Það snýst ekki um að hver manneskja megi segja sínar skoðanir bara til þess að þeirri manneskju líði vel heldur er tjáningarfrelsi mikilvægt, nauðsynlegt til þess að skoðanir hljóti lýðræðislega umfjöllun í umræðu, á kaffihúsunum, í sígópásunum, í matsalnum, við vatnskælinn, við eldhúsborðið, í vinahópnum, hvar svo sem fólk talar saman um mál sem skipta máli. Það er þegar málefnin eru stór og erfið og mikilvæg sem það skiptir mestu máli að fólk hafi sem mest svigrúm til þess að ræða hlutina á opinskáan og hreinskilinn hátt.

Þess vegna eigum við að passa okkur þegar við takmörkum tjáningarfrelsi — sem við þurfum stundum að gera — að gera það aðeins þegar það er nauðsynlegt og samræmist lýðræðishefðum, ekki til þess að senda pólitísk skilaboð, ekki vegna þess að okkur finnst eitthvað ljótt sem aðrir segja heldur aðeins þegar tjáningin brýtur beinlínis á réttindum annarra, svo sem friðhelgi einkalífs, öryggis, rétti til sanngjarnrar málsmeðferðar og svo mætti reyndar lengi telja.

Þar sem minni hlutinn telur ógerning að mótmæla þeirri tilteknu grein sem hér er breytt, kannski ekki við hæfi þar sem þetta er breyting á 233. gr. a í lögum frá 1940, leggur minni hlutinn frekar til að breytingin á greininni standi, þ.e. orðalagsbreytingin, en til þess að styrkja tjáningarfrelsið á móti falli burt fangelsisrefsingar í þeirri grein og reyndar fjölmörgum öðrum greinum í almennum hegningarlögum.

Ég vil líka árétta að það eru engar mótbárur við breytingunni á 180. greininni. Sú breyting er afskaplega góð og minni hlutinn styður hana heils hugar. En það er grein, 233. gr. a, sem vissulega takmarkar tjáningarfrelsi, og þótt minni hlutinn hafi upprunalega haft áhyggjur af því að orðalagsbreytingin gerði það að verkum að greinin víkkaði út virðist vera samhljóma álit þeirra lögfræðinga sem minni hlutinn hefur talað við að svo sé ekki og því kaus minni hlutinn að fara þessa leið í staðinn.

Að lokum vona ég að við förum að tala aftur um tjáningarfrelsi. Það er orðið svolítið langt síðan við sem samfélag, sem lýðræðissamfélag og sem vestrænt samfélag fórum að líta á tjáningarfrelsi ýmist sem einhvers konar formsatriði eða sem gefinn hlut. Hvort tveggja er rangt og hættulegt. Fyrr eða síðar munu koma stjórnvöld sem vilja þrengja að tjáningarfrelsinu á þann hátt og með þeim afleiðingum að það takmarkar umræðu og það má aldrei gerast aftur, við ættum að muna afleiðingarnar síðast. Þegar slík öfl koma til er mikilvægt að samfélagið sé frekar vant því að segja: Nei, takmörkum tjáningarfrelsið sem minnst, reynum að gera það ekki. Stundum þurfum við að gera það, gott og vel, en reynum að gera það ekki. Reynum ekki að finna ný rök til að takmarka það. Útkljáum mismunandi hugmyndafræði — sem stundum er ljót — með rökræðu, upplýstri rökræðu, upplýstri umræðu. Það hefur aldrei verið auðveldara. Það hefur aldrei verið auðveldara en nú að ræða erfiðu, ljótu málefnin, trúarbrögðin, þjóðarmorðin, stríðið, mannkynssögu almennt skrifaða með blóði. Það hefur aldrei verið auðveldara að útkljá slík mál en nú. Við eigum að nýta tækifærið með tjáningarfrelsinu, ekki með takmörkunum á því.