almenn hegningarlög.
Virðulegi forseti. Það er rétt að það var áréttað og lögfræðilegur skilningur er að ekki sé verið að útvíkka greinina. En þá veltir maður því fyrir sér til hvers það er. Jú, það er til þess að skýra orðalagið og nýja orðalagið virkar, hlýtur að virka þannig á almenning og þann sem les lögin að þau virðast afdráttarlausari vegna þess að orðalaginu „að ráðast á“ er breytt. Í 233. gr. a núverandi laga segir, með leyfi forseta:
„Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á mann eða hóp manna vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar sæti sektum eða fangelsi allt að 2 árum.“
Orðalaginu er breytt þannig að ekki er talað um að ráðast á. Það hefur engar lögfræðilegar afleiðingar, minni hlutinn skilur það og samþykkir, en þetta virkar óþægilegra ef maður les það sem nýja grein. Þar sem lögfræðingarnir segja mér að þetta hafi engar lögfræðilegar afleiðingar tek ég því og get þess vegna mælt með samþykkt frumvarpsins á þeim forsendum að fangelsisvist sé afnumin í leiðinni. Mér finnst það eðlilegt vegna þess að fólk hefur talað um það ítrekað og nefnt að fangelsisrefsingu hafi aldrei verið beitt og enginn virðist vilja vera til staðar fyrir það. Ég vænti þess að þessi breytingartillaga verði samþykkt vegna þess að það er enginn ágreiningur um lögin sjálf eins og þau koma fram, og reyndar inniheldur hún einnig orðið „kynvitund“ og hróflar auðvitað ekki við 180. gr.
Fyrst þetta frumvarp minnkar ekki tjáningarfrelsið er hér tækifæri til þess að efla tjáningarfrelsið en að sama skapi koma til móts við þau sjónarmið (Forseti hringir.) að breytinga sé þörf.