143. löggjafarþing — 51. fundur,  16. jan. 2014.

úrbætur í fangelsismálum.

[10:49]
Horfa

Karl Garðarsson (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innanríkisráðherra fyrir svörin. Það eru ákveðin vonbrigði að menn skuli ekki hafa skoðað þá möguleika sem eru í boði áður en ákvörðun var tekin um nýtt fangelsi. Reyndar er ég, þegar ég minnist á þessa byggingu þarna suður með sjó, ekki að tala um að þetta sé neitt öryggisfangelsi. Við höfum það á Hólmsheiðinni, við erum að tala um fangelsi sem mundi hugsanlega nýtast fyrir aðra fanga sem eru ekki hættulegir samfélaginu.

Ég get ekki séð að það ætti að vera svo gífurlega kostnaðarsamt að innrétta slíkt fangelsi þegar byggingin er til staðar, það er búið að hreinsa allt út, það er búið að endurnýja lagnir, byggingin er tilbúin að öllu leyti þannig að ég er mjög undrandi á því að menn skuli ekki skoða þá möguleika sem eru í boði.