innflutningur á landbúnaðarafurðum.
Virðulegi forseti. Ég ætla að ræða um mál sem nokkuð hefur verið í umræðunni, um innflutning á landbúnaðarafurðum. Ástæðan fyrir því að það hefur verið nokkuð í umræðunni eru ýmsir þættir. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni því að mér hefur ekki fundist hann fá hrós fyrir að hafa bent á það sem ég held að flestum hafi komið á óvart, í það minnsta mér, að hér væru innfluttir kjúklingar seldir sem íslenskir. Einnig kom fram í fjölmiðlum að við hefðum verið að kaupa, að við töldum, íslenskar landbúnaðarafurðir en þær hefðu í rauninni verið frá Írlandi, nánar tiltekið unnar úr írsku smjöri. Nú er það svo sannarlega ekki þannig að þessar vörur séu eitthvað sérstaklega hættulegar, en hins vegar er ekki hægt að gera íslenskum landbúnaði neitt verra en að ganga fram með þessum hætti.
Staða íslensks landbúnaðar og styrkleiki felst í því að hér er vönduð vara miðað við þær upplýsingar sem maður hefur bestar. Til dæmis sýnist manni að minna af lyfjum sé nýtt til íslenskrar landbúnaðarframleiðslu en í þeim löndum sem við berum okkur saman við og í öðrum löndum sem við flytjum vöruna til er hún seld sem sú hágæðavara sem hún er.
Umræðan um innflutning á landbúnaðarvörum hefur verið því marki brennd að mikið hefur upp á vantað að hún sé hófstillt og málefnaleg. Af minnsta tilefni verður umræðan nokkuð heit og ég held að það sé ekki hagur neins. Við erum aðilar að Alþjóðaviðskiptastofnuninni og skrifuðum undir síðasta stóra samning hennar 1994 sem ýtir undir fríverslun í heiminum og þar með talið á landbúnaðarafurðum og undirgengumst ákveðna hluti sem væri vel þess virði að fara yfir og sjá hvernig hefur gengið með framkvæmdina.
Það er algjörlega hagur okkar Íslendinga að hér séu frjáls milliríkjaviðskipti og reyndar eru allar líkur á því, annað er nokkurn veginn útilokað, að við værum mjög fátækt ríki ef við hefðum ekki aðgang að mörkuðum annars staðar frá. Við flytjum inn mikið af landbúnaðarvörum sem við alla jafna köllum ekki landbúnaðarvörur eins og hveiti, ávexti, korn og ýmislegt annað en eru svo sannarlega landbúnaðarafurðir. Ég vildi í þessari stuttu umræðu, og ég vona að við munum taka málefnalega og góða umræðu um þennan mikilvæga málaflokk í nútíð og nánustu framtíð, spyrja hæstv. ráðherra nokkurra spurninga. Ég vildi fá viðhorf ráðherra til þess að upplýsa um upprunaland búvöru. Ég held að öllum sé þó ljóst að það getur verið ákveðið flækjustig í því en að mínu áliti er mjög mikilvægt og skýlaus réttur neytenda að við fáum eins góðar upplýsingar um uppruna og eðli vöru og mögulegt er.
Svo mikið er víst að sú ofuráhersla á ódýra matvöru í heiminum, sérstaklega hinum vestræna, hefur vikið mikið frá því að menn vilja fá heilnæma og góða vöru. Það er ástæðan fyrir því sem við höfum oft rætt á þinginu og ég ætlaði ekkert að fara sérstaklega í. En þessar hefðbundnu íslensku landbúnaðarvörur uppfylla svo sannarlega þau skilyrði til vöru sem við viljum sjá.
Númer 2: Hvert er viðhorf ráðherra til endurskoðunar á úthlutun tollkvóta og þá hvernig? Þetta var gert á sínum tíma og við undirgengumst þetta til að auka samkeppni á þessum markaði. Spurningin er og væri skynsamlegt að fara yfir hvort það hafi í raun gert það og þá hvernig.
Númer 3: Vill hæstv. ráðherra auka sveigjanleika á innflutningi á hvítu kjöti? Flestar þær þjóðir sem við berum okkur saman við styðja landbúnað að stærstum hluta út af menningarlegum forsendum. Það á svo sannarlega við í okkar tilfelli þegar kemur að því sem við köllum hefðbundnar íslenskar búvörur en á síður við þegar kemur að hvíta kjötinu. Spurningin er hvort það geti ekki verið hagur okkar allra að auka sveigjanleika þar.
Númer 4: Hvert er viðhorf hans að afnema undanþágu búvörulaga sem undanskilja vissa þætti í starfsemi mjólkurframleiðslu frá samkeppnislögum? Það þarf kannski ekki að rökstyðja það neitt sérstaklega.
Númer 5, (Forseti hringir.) varðandi aukið gagnsæi á verðmyndun í smásöluverslun með búvörur því að (Forseti hringir.) svo sannarlega þurfum við að skoða þann þátt líka.
Númer 6: (Forseti hringir.) Finnst ráðherra (Forseti hringir.) eðlilegt að stórframleiðandi búvöru bjóði í tollkvóta til að vernda stöðu sína á markaði?