143. löggjafarþing — 51. fundur,  16. jan. 2014.

staða aðildarviðræðna við ESB.

[14:10]
Horfa

Vilhjálmur Bjarnason (S):

Virðulegi forseti. Það kemur mér dálítið á óvart í þessum umræðum í hvaða farveg þær eru komnar. Ég las í gegnum þingskjöl frá því sótt var um aðild fyrir rétt um fimm árum, fjórum og hálfu ári og þá fannst mér býsna lítill munur á afstöðu stjórnarflokkanna annars vegar sem skiluðu sameiginlega mjög ítarlegu nefndaráliti og hins vegar nefndarálitum minni hluta þar sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur skiluðu hvor sínu álitinu. Þótt ég sé fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í þessu máli vita allir afstöðu mína en ég tel að halda eigi viðræðunum áfram. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að mjög erfitt er að halda áfram þar sem meiri hluti þingmanna í þeim flokki er á móti. Eftir sem áður eru vandamálin brýn í þessu landi, t.d. í lykilflokkum okkar, sjávarútvegi, landbúnaði og gjaldeyris- og myntmálum. Þeim málum þurfum við að vinna í. Ég hef ekki orðið var við að farið hafi fram nein sérstök vinna í þeim á þeim tíma sem ég hef setið á þingi.

Svo má kannski rifja upp að við sjálfstæðismenn vorum tvískiptir á landsfundi þar sem sú málamiðlun, sem margoft hefur verið lesin, var farin að leita eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið heill og óskiptur að aðild að EFTA og EES en nú bregður öðruvísi við (Forseti hringir.) og ég tel miklu eðlilegra að slíta viðræðum núna en að hafa þær í þessu limbói.