velferð dýra.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti minni hluta atvinnuveganefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um velferð dýra, nr. 55/2013.
Minni hlutinn bendir á að frumvarpið er lagt fram til að draga úr umfangi þess eftirlits með velferð dýra sem kveðið er á um í gildandi lögum. Gildandi lög voru samþykkt á Alþingi síðastliðið vor en nokkur umræða varð þá í atvinnuveganefnd um eftirlitið. Undanfarin ár hafa komið upp nokkur erfið mál á þessu sviði og kemur fram í umsögn um frumvarpið að slík mál hafi styrkt skoðun margra um að fremur bæri að efla eftirlitið en að draga úr því. Einnig kemur fram í sömu umsögn að ekki veiti af eftirlitinu sem hafi forvarnagildi og veiti aðhald auk þess sem það geti stuðlað að því að vandamál séu greind.
Í frumvarpinu er kveðið á um að eftirlit með velferð dýra verði byggt á áhættuflokkun frekar en að reglulegar eftirlitsheimsóknir eigi sér stað. Ekkert liggur fyrir um sjálfa áhættuflokkunina, ekkert kemur fram um hvaða fjárhæðir munu sparast og því síður er ljóst hvernig breytingin kann að stuðla að velferð dýra.
Undir þetta nefndarálit ritar sú sem hér stendur, Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Vil ég enn fremur benda á að frumvarp um velferð dýra fékk mikla og góða umfjöllun á síðasta kjörtímabili og var samþykkt á 141. löggjafarþingi en átti að öðlast gildi 1. janúar síðastliðinn. Þáverandi atvinnuveganefnd lagði til breytingar á ákvæðinu þar sem kveðið var á um að tiltekið lágmark eftirlitsheimsókna, þær yrðu ekki sjaldnar en annað hvert ár, en þetta frumvarp gengur út á að fella það út og eftirlit verði eingöngu byggt á áhættuflokkun.
Ég vil geta þess að ég tel að frumvarpið á sínum tíma um breytingu á lögum um velferð dýra hafi fengið mjög vandaða og viðamikla umfjöllun í nefndinni og hjá þeim umsagnaraðilum sem sendu inn umsagnir og komu fyrir nefndina. Framsögumaður í því máli var þáverandi þingmaður Ólína Þorvarðardóttir og með henni að vinnu í nefndinni starfaði núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson. Ákvæðið um að eftirlit yrði eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti var ekki deilumál og ekki ágreiningsmál á þeim tíma. Þessir tveir hv. þingmenn sem ég nefndi stóðu saman að því. Það voru önnur atriði sem stóðu út af og voru umdeild og náðist kannski ekki nógu góð sátt um, en þetta var ekki eitt af þeim. Breið samstaða var um eftirlitið og núverandi hæstv. ráðherra féllst á þetta fyrirkomulag og taldi það vera gott eins og ég skildi umfjöllunina í nefndinni.
Mig undrar því mjög að menn ætli að slaka þarna á og beita áhættuflokkun þar sem ekki er búið að greina út á hvað eigi að ganga nákvæmlega og tel að ákvæðið eigi að vera áfram í lögum og það sé ekkert að því að bú séu heimsótt að lágmarki á tveggja ára fresti. Það geti líka verið gott fyrir þá sem eru í búrekstri, margt gott geti leitt af því svo sem ýmsar góðar leiðbeiningar og eftirlit sem nýtist þeim sem standa að búrekstri. Ég tel ekki að við eigum að slaka þarna á, það sé hvorki til hagsbóta fyrir velferð dýra né gagnvart þeim sem að búrekstri standa. Það hefur ekki komið fram hvaða sparnaður á að verða af þessu ef þetta gengur eftir.
Ég vil að við stöndum að því frumvarpi sem samþykkt var á síðasta þingi með mikilli pólitískri sátt og breidd.