varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá 4. þm. Suðurk., Unni Brá Konráðsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Oddgeir Ágúst Ottesen, en hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju. 1. varamaður á lista í kjördæminu hefur boðað forföll.
Borist hefur bréf frá 10. þm. Suðurk., Páli Val Björnssyni, um að hann geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann Guðlaug Elísabet Finnsdóttir. Kjörbréf Guðlaugar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Guðlaug Elísabet Finnsdóttir, 10. þm. Suðurk., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]