143. löggjafarþing — 52. fundur,  20. jan. 2014.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[15:17]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Þetta er nú að verða með undarlegri fyrirspurnum. Ég skildi hv. þingmann þannig í lokin að hann teldi að einhvers konar áróður væri í gangi í erlendum fjölmiðlum gegn Íslendingum og ríkisstjórnin þyrfti að bregðast við.

Það er reyndar alveg rétt að það borgar sig, og er mjög mikilvægt fyrir stjórnvöld, að reyna að koma réttum skilaboðum áleiðis við erlenda fjölmiðla. Oft vantar mikið upp á að erlendir fjölmiðlar séu með hlutina á hreinu hvað varðar frásagnir af gangi mála hér á Íslandi eins og við sáum mjög oft á síðasta kjörtímabili þar sem haldið var fram hlutum sem þáverandi stjórnvöld hefðu átt að gera meira í að leiðrétta eins og við í þáverandi stjórnarandstöðu bentum ítrekað á. Ég mun því bara líta á þessa fyrirspurn hv. þingmanns sem hvatningu um að gera sem mest í því að vinna í almannatengslum fyrir hönd Íslands á alþjóðlegum vettvangi þó að ég kannist ekki við þær fréttir — sem virtust nú undir lokin vera orðnar ein frétt — sem hv. þingmaður vísar til um að erlendir fjölmiðlar séu sérstaklega að skrifa um stefnu ríkisstjórnarinnar á Íslandi.