143. löggjafarþing — 52. fundur,  20. jan. 2014.

styrkir til húsafriðunar.

[15:19]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Mig langar að beina fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra varðandi styrki sem forsætisráðuneytið hefur verið að veita til húsafriðunarmála. Það hafa verið að berast af því fréttir að haft sé samband við aðila sem eru að gera upp gömul hús eða vinna að slíkum verkefnum og þeim boðinn styrkur.

Nú geri ég ekki lítið úr því að eflaust eru þetta mikilvæg verkefni en ég er hugsi yfir þessum vinnubrögðum. Ef það er rétt, eins og skilja má af fréttum, þá fara þessir styrkir í raun fram hjá hefðbundnu ferli eða lögbundnum sjóðum þar sem gert er ráð fyrir að fólk sæki um styrkina, þ.e. hafi frumkvæði að því að sækja um styrki, og umsóknir séu metnar eftir faglegum forsendum og ekki síst að fylgst sé með því í framhaldinu hvernig peningarnir eru nýttir.

Það er virkilega vandasamt verkefni, sem okkur er falið, að útdeila takmörkuðu fé úr okkar sameiginlega sjóði, ríkissjóði, og það er ástæða fyrir því að við höfum verið að færa völdin frá einstaka þingmönnum og ráðherrum og reynt að búa til faglegri umgjörð. Það er til að gæta jafnræðis og tryggja að fagleg viðmið séu höfð að leiðarljósi.

Ég vil spyrja: Er verið að hverfa frá þessu verklagi og færa styrkveitingar, í þessu tilfelli til húsafriðunarmála, í pólitískan farveg þar sem ráðherrar útdeila styrkjum og kannski eftir eigin geðþótta eða áhugamáli? Finnst hæstv. forsætisráðherra að þetta sé til marks um faglega stjórnsýslu, að það sé eðlilegt árið 2014 að útdeila styrkjum með þessum hætti?