143. löggjafarþing — 53. fundur,  21. jan. 2014.

störf þingsins.

[14:02]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Mig langar að gera eitt að umtalsefni og beini orðum mínum til fulltrúa þingmanna í umhverfis- og samgöngunefnd vegna þess að ég held að verkefnið sé þeirra. Í fréttum í dag er sagt frá togara eða skipi sem kemur hingað til lands og safnar brotajárni og spilliefnum en í ljós hefur komið að þeir sem það gera hafa ekki tilskilin leyfi til þess. Þetta er fréttin. Menn skoða þetta og hafa ákveðið að kæra verknaðinn til lögreglu og annarra til þess bærra yfirvalda eða þess háttar eftirlitsaðila vegna tolla o.fl.

Það vakti hins vegar furðu mína að hvorki í fréttablöðum né fjölmiðlum hefur verið nefnt eða orðað hver ábyrgð þeirra er hér á landi sem afhenda eða láta af hendi brotajárn og spilliefni til einhverra útlendinga í þessu tilviki til að flytja úr landi. Hver er ábyrgð þeirra? Er hún engin? Er ekki vert að við og þeir þingmenn sem í umhverfis- og samgöngunefnd sitja kanni það og hvort hugsanlega einhver viðurlög séu við því að til séu fyrirtæki sem tilbúin eru að selja eða láta úr landi brotajárn og spilliefni sem kostar þá einhverja fjármuni að farga hér heima til að farga einhvers staðar annars staðar á kostnað annarra þjóða og annarra manna? Ég tel ábyrgð þeirra ekki minni en hinna sem safna.