143. löggjafarþing — 53. fundur,  21. jan. 2014.

Fiskistofa og vinnubrögð stofnunarinnar.

[14:14]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir umræðuna. Ég tek heils hugar undir það að mikilvægt er að ræða heimildir og framkvæmd eftirlits hjá eftirlitsstofnunum ríkisins. Ég hef persónulega haft þá trú að mikilvægt sé að taka til ítarlegrar skoðunar hvort æskilegt sé að vinna í auknum mæli að aðskilnaði stjórnsýslu og eftirlits hjá ríkinu. Með þessu tek ég undir spurningu hv. þingmanns að mikilvægt sé að skoða sérstaklega rannsóknarheimildir og úrskurðarvald Fiskistofu.

Ég vil þó taka fram að mér finnst það jafnt eiga við um aðrar stofnanir sem eru í sömu stöðu. Það eftirlit sem hér er til sérstakrar umfjöllunar er oft nefnt bakreikningseftirlit. Þar er vísað til þess að afli sem kemur úr fiskvinnslu er reiknaður aftur til þess hráefnis sem var tilkynnt inn í vinnsluna. Í eftirlitinu felst að kanna hvort munur sé þarna á sem gefi til kynna að vinnslan hafi tekið við afla til vinnslu sem ekki var veginn samkvæmt reglum á hafnarvog. Hér getur verið um umfangsmiklar rannsóknir að ræða sem fela í sér viðamikla gagnayfirferð.

Þær rannsóknarheimildir sem bakreikningseftirlit byggir á eru sóttar í lög um álagningu sérstaks gjalds vegna ólögmæts sjávarafla. Ákvæði þeirra laga heimila stofnuninni að afla gagna á þann hátt sem hv. þingmaður vísar hér til. Mér finnst mikilvægt að Fiskistofa, sem og aðrar stofnanir með ríkar eftirlits- og rannsóknarheimildir, fari með þær að meðalhófi. Að sama skapi ber þessum stofnunum að leiða þau mál sem þær rannsaka til lykta á eins skömmum tíma og unnt er.

Ég get tekið undir að sá málsmeðferðartími sem hér er nefndur sé langur, allt of langur, sérstaklega í ljósi þess að rannsókn á fyrirtækjunum getur haft mjög neikvæð áhrif á starfsumhverfi þeirra. Að sama skapi geta rannsóknirnar verið flóknar og mikilvægt að þær séu vel unnar og trúverðugar.

Hér hafa verið nefnd sérstaklega nokkur mál er varða einstök fyrirtæki. Æ fleiri stofnanir þjóðfélagsins taka nú við ábendingum frá borgurum um möguleg brot. Þar er Fiskistofa ekki einsdæmi. Einhver mál kunna að spinnast í kjölfar slíkra ábendinga. Varðandi tilurð bakreikningsrannsókna geta þær komið til í kjölfar þess að fyrirtæki varð uppvíst að öðrum alvarlegum brotum sem leiddu til frekari rannsókna eða vegna ábendinga eða tilviljunarkenndra rannsókna. Þannig er erfitt að fullyrða um tilefni rannsókna hverju sinni.

Það er mikilvægt að ræða heimildir og framkvæmd þess eftirlits sem hér um ræðir. Menn sem eiga í samskiptum við stofnanir eiga að geta gengið út frá jákvæðri nálgun og sanngjarnri málsmeðferð og ætla ég starfsmönnum Fiskistofu ekki annað. Ég vil þó gjarnan leggja áherslu á að mikilvægt er að eftirlit í sjávarútvegi einkennist af festu og skilvirkni. Hér er jú um að ræða eftirlit með sameiginlegri auðlind þjóðarinnar sem viðkomandi aðilar hafa afnotarétt af og eðlilegt að með þeirri nýtingu sé fylgst á trúverðugan hátt.

Ég er þeirrar skoðunar að viðurlög við brotum, sérstaklega þeim sem snúa að vigtun sjávarafla eða óábyrgri umgengni við auðlindina, eigi að vera íþyngjandi, jafnvel með ítrekunaráhrifum og hafa forvarnagildi. Niðurstöður þeirra rannsókna sem hér um ræðir geta falið í sér verulega íþyngjandi sektir. Það er ljóst að þeim mun meira íþyngjandi sem viðurlagaákvæðin eru, þeim mun ríkari er rannsóknarskylda þess stjórnvalds sem viðurlögunum beitir.

Forsvarsmenn Fiskistofu hafa nýlega bent mér á þau vandkvæði sem eru til staðar í þessu eftirliti og þunga sönnunarbyrði. Það er því sameiginlegt álit okkar að endurskoða þurfi þennan hluta eftirlitsins frá grunni. Það breytir því ekki að við getum ekki fallið frá kröfu um skilvirkt eftirlit með vigtun sjávarafla. Þó svo að mikill minni hluti, og ég vil ítreka það, mikill minni hluti sjávarútvegsfyrirtækja gerist sekur um brot á fiskveiðilöggjöfinni getur ágóðinn af því verið þó nokkur og erfitt að færa á það sönnur. Ég get upplýst þingið um að reglur um vigtun sjávarafla eru til endurskoðunar í ráðuneyti sjávarútvegsmála og það er reyndar á þingmálalista þessa vorþings. Lagt er upp með tillögur sem fela í sér að einfalda vigtarreglur þannig að ferlið til endanlegrar vigtunar sé styttra og viðkomustaðir færri. Í þessu felst meðal annars sá ávinningur að einfaldara er að haga eftirliti með vigtun. Nái þetta fram að ganga má ætla að minni þörf verði á stórum og dýrum bakreikningsrannsóknum, sem því miður hafa ekki skilað tilætluðum árangri.

Að lokum var spurt hvort tilefni sé til að endurskipuleggja starfsemi Fiskistofu. Niðurskurður í fjárlögum og tillögur hagræðingarhóps fela í sér þörf á endurskipulagningu í öllum ríkisrekstri og þar er Fiskistofa ekki undanskilin. Ég vil þó í þessu samhengi vekja athygli á því að hlutverk Fiskistofu er þríþætt; eftirlit, stjórnsýsla og þjónusta. Eftirlitið er sýnilegast og eðlilega mest um það rætt. Mér finnst sérstakt tilefni til að geta þess að Fiskistofu hefur í mín eyru almennt verið hrósað fyrir vandaða stjórnsýslu og góða þjónustu. Leyfisveitingar ganga hratt fyrir sig, þjónusta er rafræn, svör eru skýr og vefur stofnunarinnar, með þeim upplýsingum sem þar er miðlað, (Forseti hringir.) þykir til fyrirmyndar.