Fiskistofa og vinnubrögð stofnunarinnar.
Herra forseti. Hlutverk Fiskistofu er margþætt og mikilvægt að hún sinni því hlutverki af myndugleik og að um vinnubrögð hennar ríki traust og trúnaður og að eftirlitshlutverk hennar með lögum um fiskveiðistjórn sé oftar en ekki óumdeilt, þó að eðlilegt sé að hún sé ekki yfir alla gagnrýni hafin í verkum sínum.
Hlutverk Fiskistofu er margþætt. Hún hefur virkt eftirlit með veiðum og annast framkvæmd laga og reglna um stjórn fiskveiða. Fiskistofa heldur úti miklum gagnagrunni og þar fara í gegn úthlutanir á aflaheimildum til skipa og haldið er utan um aflamarksfærslur.
Upp hafa komið, eins og hefur verið nefnt hér, reglulega á undanförnum árum kærumál þar sem Fiskistofa telur fyrirtæki hafa brotið lög um stjórn fiskveiða og nýtir þær heimildir sem hún hefur til þess að sinna þeim málum og fylgja eftir þeim grun sem hún telur rétt að rannsaka og kæra í framhaldinu ef sá grunur reynist á rökum reistur. Þó verður alltaf að ég tel að gæta meðalhófs.
Það sem má vissulega gagnrýna Fiskistofu fyrir er þegar óeðlilegur dráttur verður á rannsókn mála og andmælaréttur fyrirtækja er löngu liðinn, öll gagnaöflun er löngu búin en niðurstaða í málum liggur ekki fyrir jafnvel tveim til þrem árum eftir að rannsókn hófst. Þar þarf að bæta úr, ég tek undir með fyrri ræðumönnum um það, og gera Fiskistofu skylt að ljúka málum innan ákveðinna tímamarka. Það hlýtur að vera sjálfsögð stjórnsýsla og eðlileg krafa þar sem um er að ræða þennan mikilvæga eftirlitsaðila sem á að gæta hagsmuna okkar allra, gæta að umgengni við auðlind okkar og hvernig með hana er farið, því að vissulega liggja þarna oft miklir fjármunir undir og líka það að menn séu samkeppnisfærir innan sjávarútvegsins.