143. löggjafarþing — 53. fundur,  21. jan. 2014.

Fiskistofa og vinnubrögð stofnunarinnar.

[14:35]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka fína umræðu og samstöðu þingmanna um þetta málefni.

Ég vil svara hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur því að það er engan veginn ásetningur Fiskistofu að leggja niður starfsemi á Ísafirði eða annars staðar á landsbyggðinni, það er tímabundið ástand, og er ekki stefna ráðuneytis, ráðherra eða ríkisstjórnar að gera það. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vera sammála stefnu ríkisstjórnarinnar í því að efla starfsemi ríkisstofnana á landsbyggðinni. Það er akkúrat okkar verkefni, hlutverk og stefna.

Vandinn er eins og komið hefur fram í þessari umræðu að stofnanir eins og Fiskistofa og sambærilegar stofnanir, sem hafa með stjórnsýslu og þar með leiðbeiningarskyldu að gera, hafa jafnframt eftirlit með sinni stjórnsýslu og síðan rannsóknarheimildir og aðrar valdheimildir sem viðkomandi stofnanir hafa til að fylgja eftir eftirlitinu. Því er mikilvægt að það sé festa, skilvirkni og trúverðugleiki í starfsemi slíkra aðila. Allt kerfið byggir á því að menn treysti því að þar sé farið fram af sanngirni og meðalhófi en engu að síður fylgt eftir þeim málum sem út af standa.

Þess vegna er það nálgun okkar í ráðuneytinu að reyna að finna lausnir á málinu. Eins og kom fram í máli mínu fyrr er það sameiginleg niðurstaða okkar, Fiskistofu og ráðuneytisins, að endurskoða þurfi þá aðferðafræði sem hefur verið notuð við þessar bakreikningsleiðir. Þær hafa ekki skilað nægilegu, þær eru mjög erfiðar, en eiga engu að síður að tryggja að eftirlitið sé til staðar. Og einnig að finna lausnir á þeim vanda sem vigtunin býr til, reyna að finna á því einfaldari lausnir og koma meiri skilvirkni í það kerfi. Að því er unnið og vonandi skilum við frumvarpi þess efnis til þingsins á vordögum.