opinber skjalasöfn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Hvað varðar fyrstu spurninguna um nafn á skjali munu gilda þær reglur sem settar verða af hálfu Þjóðskjalasafnsins sjálfs. Það er ekki kveðið nákvæmlega á um það í lögunum sjálfum að því er ég best man. Þjóðskjalasafnið þarf síðan að bera reglur sínar undir ráðherra.
Hvað varðar kostnað er afhending á skjölum stórt mál auðvitað. Það er heimild í lögum fyrir Þjóðskjalasafnið að innheimta kostnað fyrir vinnu sína, það þarf bara að vera raunkostnaður. Ég tek sem dæmi að fasteignasölur og lögmannsstofur, sem þurfa á skjölum að halda, jafnvel í miklum mæli, leita til safnsins og þá er alveg eðlilegt að safnið geti rukkað fyrir slíkt. Það verður þó aldrei þannig að mínu mati að það komi í veg fyrir að einstaklingar geti sótt sér þau gögn eða fengið aðgang að þeim gögnum sem þeir leita eftir. Það verður aldrei um slíkar fjárhæðir að ræða. Þetta á auðvitað helst við þegar um er að ræða stórar og miklar beiðnir, þegar mikið gagnamagn er undir og mikil vinna fer fram af hálfu starfsmanna safnsins í að sækja þessi gögn.
Ég get ekki alveg svarað þingmanninum varðandi fordæmi fyrir afhendingarhraðanum. Ég biðst forláts á því en ég er ekki alveg klár á því hvort farið hafi verið eftir afhendingarhraða hjá einstökum löndum. Það fer væntanlega með sama hætti og í reglunum hjá safninu sjálfu um afhendingartímann. Það eru ekki sérstök ákvæði um það. Auðvitað er reynt að vinna þetta eins hratt og mögulegt er. Ég held að það sé almenna reglan.