opinber skjalasöfn.
Virðulegi forseti. Fyrst varðandi kæruleiðina, það verður breyting á í þessum lögum frá því sem áður hefur verið. Það verður hægt að kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Sú nefnd er þannig að ef einstaklingur er ekki sáttur við niðurstöðuna hjá safninu er þetta kæruleiðin, ekki til ráðherra. Það var valin sú leið. Það er nýmæli í þessu.
Ég tek undir með þingmanninum, það er margt í þessu, þetta er stórt og mikið frumvarp og fjöldi mikilvægra álitamála þarna vegna þess að snert er á sviðum sem eru mörg viðkvæm og skipta verulega máli fyrir réttaröryggi borgaranna, kröfu borgaranna á að einkalífs sé gætt, um leið líka kröfu okkar allra á því að afla okkur upplýsinga. Það hvernig slíkar upplýsingar almennt eru geymdar og aðgengi stýrt er stórmál. Þarna er líka um að ræða réttaröryggi okkar, upplýsingar um eignarrétt og önnur réttindi manna sem þarf að tryggja að séu vel varin.
Ég skora á hv. þingmenn sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd að skoða þetta vel og vandlega. Ég er opinn fyrir öllum athugasemdum og tillögum til hins betra en auðvitað er það þingið sjálft sem fer með málið. Eftir að hafa farið yfir málið aftur og aftur kemur maður í hvert skipti auga á eitthvert nýtt atriði. Það eru fleiri atriði sem kalla á meiri umræðu. Ég veit að hv. þingmanna í nefndinni bíður heilmikið starf við að fara í gegnum þetta. Þetta er ekki einfalt mál.