opinber skjalasöfn.
Virðulegi forseti. Ég er með frekar einfalda spurningu sem varðar það að með þessum nýju lögum verði Alþingi ekki lengur skylt að afhenda gögn til Þjóðskjalasafns. Nú veit ég ekki alveg nákvæmlega hvaða háttur hefur verið á hingað til en ég velti fyrir mér hvort Alþingi hafi stólað á að Þjóðskjalasafn safni þessum gögnum. Það sem ég hef áhyggjur af og vil spyrja frekar um er hvort gert sé ráð fyrir fjármagni eða hvort gera þurfi ráð fyrir fjármagni til þess að Alþingi geti staðið undir skjalavörslu sem dugir til lengri tíma.