143. löggjafarþing — 53. fundur,  21. jan. 2014.

staða Íslands í alþjóðlegu PISA-könnuninni, munnleg skýrsla mennta- og menningarmálaráðherra.

[15:38]
Horfa

Karl Garðarsson (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra fyrir skýrslu hans um PISA-könnunina.

Könnunin er áfellisdómur, ekki bara yfir skólastefnu okkar heldur líka þjóðfélaginu í heild og hvernig við búum að nemendum okkar. Það er algjörlega óviðunandi að við séum fyrir neðan meðaltal OECD-ríkjanna í lestri, reikningi og náttúruvísindum. Það að 30% drengja geti við lok grunnskóla ekki lesið sér til gagns eru vægast sagt alvarleg tíðindi. Hvaða framtíð bíður þessara drengja á vinnumarkaði og hvernig verður skólaganga þeirra næstu árin ef við vanrækjum að kenna þeim grundvallaratriði eins og lestur? Niðurstöðurnar í PISA eru sláandi fyrir Ísland. Frammistaða íslenskra nemenda versnar verulega frá 2009 og hefur nemendum hrakað sem nemur hálfu skólaári á síðasta áratug. Ísland og Svíþjóð eru með lökustu frammistöðu allra Norðurlandanna.

Eins og fram hefur komið er verulegur munur á höfuðborgarsvæði og landsbyggð og hefur landsbyggðin dregist aftur úr. Piltum hefur farið aftur í lesskilningi og stærðfræðilæsi. Það er ekki nóg með að 30% þeirra séu í lægstu þrepum lesskilnings, heldur eru um 20% þeirra í neðstu þrepum stærðfræðilæsis. Þegar kemur að náttúrufræði er frammistaða íslenskra nemenda sú lakasta af öllum Norðurlöndunum.

Þetta eru aðeins örfá atriði sem lesa má út úr þessari PISA-könnun. Við megum þó ekki gleyma því að við erum ekki ein á báti. Hin Norðurlöndin eru líka á niðurleið samkvæmt PISA. Svíar, Danir og Finnar, sem hafa yfirleitt skorað hátt í þessari könnun, hafa miklar áhyggjur af þróuninni og fjölmiðlar í þessum löndum hafa verið uppfullir af tilgátum um orsakir þess að nemendur þessara landa koma verr út úr þessari könnun en áður.

Fréttamenn danska sjónvarpsins hafa meðal annars horft til þátta eins og heimilislífs og hvernig búið er að nemendum utan skólans. Niðurstaða þeirra er að nemendur sem koma frá heimilum þar sem menning er í hávegum höfð skori hærra í PISA en aðrir. Nemendur sem hafa aðgang að mörgum sjónvarpstækjum og verja tíma sínum í tölvuleikjum og á samskiptamiðlum á netinu skora lægra. Þetta þarf kannski ekki að koma á óvart. Danskir fræðimenn benda á til viðbótar að fjárhagur foreldra skipti ekki máli þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar, heldur frekar hvernig foreldrarnir verja peningum sínum.

Í Svíþjóð hefur umræðan meðal annars snúið að skólastefnunni. Þar telja margir að það skorti á jafnrétti í skólum og að fjölga þurfi kennurum sem hafi þurft að taka á sig alls kyns stjórnunarstörf á kostnað kennslunnar.

Nauðsynlegt er að fram fari rannsókn á orsökum þess að við komum svona illa út úr PISA-könnuninni. Bæði þarf að skoða uppbyggingu skólakerfisins og utanaðkomandi þætti sem hafa áhrif á nemendur, heimilin, uppeldið og hvernig við búum almennt að framtíðarkynslóðum okkar. Eitt er ljóst, sökin liggur ekki á einum stað. Það væri mikil einföldun að kenna bara skólanum um hvernig komið er. Við þurfum meðal annars að skoða áhrif hrunsins árið 2008 á líðan nemenda.

Finnar lentu í miklum efnahagsþrengingum á sínum tíma. Þeir hafa síðan tala um að nánast heil kynslóð hafi tapast. Ungt fólk sem flosnaði upp úr skóla fékk ekki vinnu og lenti á atvinnuleysisskrá. Afleiðingin af kreppunni í Finnlandi kom ekki fram hjá þessu unga fólki fyrr en mörgum árum síðar. Vonandi þurfum við ekki að horfa á svipað hér á landi, en hér virðast menn værukærir gagnvart þessum möguleika. Talsverðar líkur eru á að skólaganga þeirra sem koma illa undirbúnir úr grunnskóla verði stutt. Það getur leitt til aukins atvinnuleysis hjá þessum hópi, enda eru kröfurnar um menntun og hæfni sífellt að verða meiri.

Þessi PISA-könnun þýðir aðeins eitt: Við verðum að bregðast skjótt við.