staða Íslands í alþjóðlegu PISA-könnuninni, munnleg skýrsla mennta- og menningarmálaráðherra.
Virðulegur forseti. Við settum okkur það markmið að árið 2020 yrði færni íslenskra grunnskólabarna sambærileg við tíu efstu þjóðir samkvæmt OECD PISA-rannsókn. Samkvæmt nýjustu rannsókn færumst við fjær því markmiði. Það kemur einnig í ljós að annars staðar á Norðurlöndum virðist hið sama vera á ferðinni. Það beinir sjónum okkar að þeim sameiginlega menningarheimi sem við deilum og ég tel vert að það verði skoðað frekar hvort innan hans megi greina einhverja þætti sem kynnu að hafa þessi áhrif sameiginlega á Norðurlöndum.
Þessi PISA-könnun dregur líka fram breikkandi bil á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Við getum ekki sem Íslendingar unað við það. Við þurfum að greina vandann, vinna úr honum og ráðast í breytingar ef þess gerist þörf með það að markmiði að íslenskum grunnskólabörnum gangi betur, þau verði betur í stakk búin til að taka þátt í slíkum rannsóknum og að þau telji mikilvægt að standa sig vel í þeim sem og á öðrum vettvangi.
Virðulegur forseti. Ég tel líka ástæðu til að nefna að þegar rannsóknir sýna að líðan barna í skólum sé betri en í fyrri rannsóknum er það vel. Ef samhliða betri líðan dregur hins vegar úr námsárangri klingja í það minnsta hjá mér, fyrrum kennara og skólastjóra, varúðarbjöllur vegna þess að betri líðan ætti að kalla á betri námsárangur. Það er frábær niðurstaða þessarar könnunar að nemendum okkar í grunnskólum líði betur en í sambærilegum könnunum áður fyrr en ég tel samt ekki ásættanlegt að samhliða því hraki þeim námsárangri sem þessi rannsókn tekur til.
Það er ljóst að við höfum fjarlægst markmiðið sem við settum okkur fram til 2020. Það er verk að vinna. Við fögnum því sem vel er gert. Við fögnum því góða sem kemur út úr þessari rannsókn, en við þurfum að greina hana. Við þurfum að vinna úr henni og ef þess gerist þörf þurfum við að ráðast í breytingar með sameiginlegu átaki starfsmanna skóla, sveitarfélaga og menntamálaráðuneytisins.