143. löggjafarþing — 54. fundur,  22. jan. 2014.

störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Ég ætla að nýta mér þennan lið um störf þingsins til að leggja spurningu fyrir hv. þm. Vilhjálm Bjarnason, sem er fulltrúi í efnahags- og viðskiptanefnd sem ég ber mjög mikið traust til í sambandi við efnahags- og viðskiptamál.

Ástæðan er álagning bankaskatts, hvernig fundið var það frískuldamark sem gert hefur verið að umtalsefni í þjóðfélaginu. Það verður að segjast alveg eins og er að vegna þess hvað formaður nefndarinnar, hv. þm. Frosti Sigurjónsson, hefur orðið margsaga í þessu máli líður mér sem þingmanni mjög illa yfir því að hafa þurft að taka ákvörðun vegna þeirra vinnubragða sem þar hafa verið viðhöfð. Við treystum auðvitað á vinnu nefnda til að taka ákvörðun. Ég studdi álagningu þessa skatts, ég styð að hann sé notaður til að koma til móts við stökkbreytt lán hjá almenningi í landinu þó að ég hafi fyrirvara um frekari útfærslu.

En þessi margsögn hv. þingmanns um það hvernig þetta var gert vekur mér óhug. Hvort sem þetta var slys, óhapp, slæm eða slæleg vinnubrögð, er þetta alla vega hið versta mál og kemur óorði á störf Alþingis. Það verður bara að segjast eins og er.

Þess vegna vil ég nota þetta tækifæri og spyrja hv. þm. Vilhjálm Bjarnason, sem situr í efnahags- og viðskiptanefnd og tilheyrir meiri hluta hennar, hvernig þetta frískuldamark hafi verið fundið. Hver var vinnan? Ég treysti því sem sagt var, að fjármálaráðuneytið væri þarna að vinna faglega vinnu til að leggja til þingnefndarinnar og að málið kæmi svo til okkar alþingismanna til ákvarðanatöku.

Spurning mín til hv. þingmanns er einföld: Vill hv. þingmaður deila með okkur hér í þingsal sýn sinni á hvernig þetta frískuldamark var fundið, þessir 50 milljarðar? Hvernig voru vinnubrögðin?