lánshæfismat og traust.
Herra forseti. Í framhaldi af þessari umræðu langar mig til að ræða við hæstv. fjármálaráðherra um traust. Við höfum rætt hér lítillega lánshæfismat. Það er fyrst og fremst mælikvarði á traust þjóðar, ríkisvalds eða ríkisstjórnar og framtíðarhorfur landsins út frá efnahagslegum áætlunum og gerðum. Eins og ég hef sagt áður, og það hefur komið fram í fréttum núna á síðustu dögum, m.a. í International Finance Review og hjá Reuters-fréttastofunni og á fleiri stöðum, fer lánshæfismatið minnkandi og vextir hækkandi.
Á síðasta kjörtímabili var þrátt fyrir allt ekki mikið um þetta deilt og stjórnvöld voru talin vera á réttri leið og með áætlun í gangi sem naut trausts og þótti sæmilega trúverðug. Það má vissulega deila um hversu hratt við fórum og hvort við hefðum getað farið hraðar en ekki var deilt um hvort við værum að gera rétt. Það var óumdeilt en nú er það hins vegar deiluefni.
Erlendir aðilar, erlendar lánastofnanir, erlend fjármálafyrirtæki hafa ekki lengur trú á því að við séum á réttri leið. Það er mikil breyting frá því sem áður var.
Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort einhver plön séu í gangi hjá ríkisstjórninni um að bregðast við þessu minnkandi trausti sem erlendir aðilar sýna Íslandi og við sjáum að kemur m.a. fram í ávöxtunarkröfu á fimm ára skuldabréfi ríkissjóðs, það hefur hækkað um meira en þriðjung frá kosningum. Ég held að enginn í heiminum — það væri þá gott ef hæstv. ráðherra gæti bent mér á það — nema stjórnarflokkarnir sjálfir, hafi lýst því yfir að ríkisstjórnin sé á réttri leið í efnahagsmálum. Þvert á móti dregur jafnt og þétt úr trausti gagnvart Íslandi.
Hefur ráðherrann áhyggjur af þessu? Stendur til að ríkisstjórnin geri eitthvað og þá hvað?