lánshæfismat og traust.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvað þingmaðurinn er að fara í þessari umræðu, ég verð bara að játa það. Ég ætla að vona að þingmaðurinn sé ekki að láta reka sig hingað upp í ræðustól af stórum umsvifamiklum kröfuhöfum sem lýstu því yfir í viðtali við Reuters núna að við værum að dragast aftur úr miðað við þá þróun sem hv. þingmaður lýsir, og fór að líkja okkur við ríkin í sunnanverðri Evrópu, sem er auðvitað tómt rugl. Ef menn skoða þróun skuldatryggingarálagsins annars vegar á Íslandi og hins vegar hjá þessum ríkjum kemur í ljós að það stendur ekki steinn yfir steini í þeirri umfjöllun sem þar var og sætir furðu að jafn ágætur fjölmiðill og Reuters skuli hleypa stærstu kröfuhöfunum á Ísland og þrotabúin í einhvers konar prinsessuviðtal þar. Það er alveg með ólíkindum. Annar þeirra er líklega hæstlaunaði lögfræðingurinn í London. Viðtalið er alfarið á viðskiptum með kröfur á íslensku bankana.
Ég trúi ekki að hv. þingmaður hlaupi á eftir ummælum frá svona fólki vegna þess að tölurnar sýna allt annað. Tölurnar sýna að við erum nú í fyrsta skipti í sex ár að loka fjárlagagatinu, það er lofað af öllum umsagnaraðilum um ríkisfjármálin á Íslandi. Það er rangt sem hér kemur fram, að lánshæfismat Íslands sé í einhvers konar uppnámi, þvert á móti er ekki annað að merkja en að það sé stöðugt og í ágætislagi. Hér horfum við fram á tíma þar sem verðbólgan er á niðurleið og það er bara nokkuð bjart fram undan samanborið við það þegar við vorum hér í stöðugum ágreiningi og með risastór mál í uppnámi, m.a. við aðila vinnumarkaðarins allt síðasta kjörtímabil þar sem slitnaði upp úr stöðugleikasáttmálanum, þar sem menn voru í þjóðaratkvæðagreiðslum þar sem ríkisstjórnin var hrakin til baka aftur og aftur o.s.frv.
Það er ólíku saman að jafna, stöðunni í dag og áliti alþjóðafjárfestingaumhverfisins á Íslandi borið saman við það sem gilti fyrir stuttu síðan. Það er ekki nokkur flugufótur (Forseti hringir.) fyrir þeim ummælum sem birtust í þessum alþjóðlega miðli fyrir nokkrum dögum. Ég trúi því ekki að hv. þingmaður vísi í það. (SJS: … misskilja þetta.)