endurgreiðsluhlutfall lána hjá LÍN.
Virðulegi forseti. Komið hefur fram í fréttum að í óefni stefnir hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna og leggja þurfi að óbreyttu allt að 800 milljónir í sjóðinn á ári. Ástæða þessa er ekki síst sú að sjóðurinn verður að afskrifa stóran hluta þeirra lána sem hann hefur veitt þar sem þau skila sér ekki til baka og eru því eins konar opinber stuðningur við lántakendur, auk þess er vaxtamunur talsvert mikill hjá sjóðnum á milli inn- og útlána.
Í gær heyrði ég að hlutfallið sem skilaði sér ekki til baka og yrði ekki endurgreitt væri allt að 47%, þ.e. nánast helmingur lána skilaði sér ekki til baka og er því eins konar styrkur til lántakenda. Oftast eru það þeir sem taka hæstu lánin á námsferli sínum sem njóta góðs af. Kerfið er í rauninni þannig byggt upp að þegar ákveðnum mörkum er náð í lántöku er ólíklegt að menn þurfi að greiða allt til baka.
Því vil ég spyrja hæstv. menntamálaráðherra: Getur hann staðfest að um helmingur lána sem veitt eru skili sér ekki til baka? Gengur það upp í hans huga út frá jafnræðisreglu að ákveðinn hluti námsmanna fái styrki frá ríkinu í formi námslána en aðrir ekki? Ef eðlilegt er að veita slíka styrki, er þá ekki réttara að taka upp sérstakt styrkjakerfi sem allir námsmenn sem eru lánshæfir hafi aðgang að?