143. löggjafarþing — 55. fundur,  23. jan. 2014.

endurgreiðsluhlutfall lána hjá LÍN.

[10:59]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Þessi skýrsla er ágætt innlegg í umræðu um stöðu lánasjóðsins og getur nýst stjórn sjóðsins í framhaldinu og er nauðsynlegt gagn þegar móta á ákvarðanir um útlánareglur og slíkt. Það er þó rétt að hafa í huga að við fögnum því að fleiri stundi nám. Við fögnum því að menn telji hag sínum betur borgið með því að fara í nám. Það kostar okkur auðvitað fjármuni. Við viljum að það séu styrkir fyrir þá sem njóta námslánanna. Spurningin sem stendur þá kannski upp úr er fyrst og síðast hvernig fyrirkomulag við viljum hafa á þeim styrkjum þannig að þeir nýtist sem best nemendunum og síðan heildarhagsmunum íslenska ríkisins og samfélagsins alls.

Þetta eru stórar spurningar sem við þurfum að fást við en það er alveg rétt sem hv. þingmaður bendir á, það stefnir allt í töluverðan útgjaldaauka vegna þessa.