143. löggjafarþing — 55. fundur,  23. jan. 2014.

vetrarólympíuleikarnir í Rússlandi.

[11:05]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er nú fjarri öllu lagi að í því felist pólitískt samþykki á stefnu stjórnvalda í Rússlandi að taka þátt í Ólympíuleikunum. Ég vænti þess ekki að til dæmis þeir fulltrúar íslenskir sem fóru á Ólympíuleikana í Bandaríkjunum á sínum tíma hafi þar með verið að lýsa yfir samþykki sínu á beitingu dauðarefsinga í því landi, sem mér er mjög þvert um geð, og tel reyndar alveg ömurlegt að sé stundað. Ég get ekki ímyndað mér að þannig hafi verið litið á að þar hafi verið einhvers konar samþykki á ferð.

Ég er þeirrar skoðunar, eins og ég lýsti hér áðan, og er þá sammála þeim orðum sem hv. þingmaður vitnaði til, orðum forustumanna úr íþróttahreyfingunni, að varhugavert sé að tengja um of þarna á milli, þó að sjálfsagt sé að hafa þetta í huga. Gefist tækifæri til þess að koma slíkum athugasemdum á framfæri mun ég að sjálfsögðu gera það. Það er ekkert sjálfgefið að það verði. Ég bara átta mig ekki á því hvort dagskráin býður upp á slíkt.

Afstaða mín liggur fyrir og ég hef nefnt hana hér í ræðu áður. Ég held að allir þingmenn séu sammála um að enginn getur verið sáttur við þessa stjórnarstefnu. En það að mæta á Ólympíuleikana getur aldrei þýtt það (Forseti hringir.) menn hafi skrifað upp á slíkt eða hafi veitt einhvers konar þegjandi samþykki.